Guðmundur Pálsson 14. jún. 2019

Sumaropnun Ráðgjafar­þjónustunnar og spennandi námskeið í haust

Þjónusta Ráðgjafarþjónustunnar verður að mestu með hefðbundnu sniði í sumar. Hlé verður gert á námskeiðahaldi yfir hásumarið en það hefst svo á ný af miklum krafti í lok ágúst og eru upplýsingar um þau að finna hér að neðan.

Sumaropnun

Í júní verður opið frá kl. 09:00-16:00 mánudaga til miðvikudaga, kl. 09:00-18:00 fimmtudaga og kl. 09:00-14:00 föstudaga.

Í júli verður opið alla virka daga frá kl. 09:00-16:00 ef frá eru taldir föstudagarnir 19. og 26. júlí. Föstudaginn 2. ágúst verður einnig lokað.

Vikulegir tímar í slökun og Jóga Nidra verða í boði til 15. júlí og hefjast aftur samkvæmt dagskrá 7. ágúst.

Símaráðgjöfin (800 4040) er opin kl. 10:00-15:00 þá daga sem Ráðgjafarþjónustan er opin.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Næstu námskeið


 

Í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins er boðið upp á fræðslu, upplýsingar, ráðgjöf og stuðning við fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur.​


Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?