Karlarnir og kúlurnar
Markmiðið með verkefninu Karlarnir og kúlurnar er að veita körlum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa golfsveifluna i fallegu umhverfi og njóta samvista við golffélaga með svipaða reynslu.
Karlarnir og kúlurnar - Bakkakoti þriðjudaginn 12. september 2023
Karlarnir og kúlurnar er verkefni á vegum Krabbameinsfélag Íslands, Krafts og styrktaraðila, þar sem körlum er boðið að taka þátt í golfdegi. Verkefnið hófst árið 2011 og er hugsað sem endurhæfing fyrir karla sem hafa greinst með krabbamein.
Leikið verður þriggja manna Texas Scramble (9 holur). Mæting kl. 09:30.
Markmiðið er að veita körlum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa golfsveifluna i fallegu umhverfi og njóta samvista við golffélaga með svipaða reynslu. Vanir PGA golfkennarar hafa komið og leiðbeint við golfsveifluna áður en haldið er út á völl.
Tólf menn hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni á hverju ári í september sér að kostnaðarlausu. Það er ekki síst að þakka stuðningi Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Boðið verður upp á léttar veitingar eftir hringinn.
Ummæli þáttakanda
Mig langar að þakka Krabbameinsfélaginu, þeim sem skipulögðu mótið og Jóni Karls golfkennara fyrir skemmtilegt mót. Kennsla Jóns var mjög svo áhugaverð og umræðan eftir verðlaunaafhendinguna var sérdeilis fróðleg og gagnleg.
Ég þakka fyrir mig og hlakka til næsta árs.
Kveðja Júlíus
Nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að fá hjá Krabbameinsfélaginu. Umsóknir þarf að senda Krabbameinsfélaginu fyrir 30. ágúst á radgjof@krabb.is eða hafa samband í síma 800 4040.