Frískir menn
Stuðningshópur fyrir þá einstaklinga sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein og hafa möguleika á virku eftirliti.
“Virkt eftirlit” felst í því að eftir að maður, sem hefur greinst með blöðruhálskirtilskrabbamein og hefur gildi við greiningu sem eru undir tilteknum mörkum, hefur þann valmöguleika að láta fylgjast með sér með í stað þess að fara í hefðbundna meðferð.
Markmiðið með starfsemi stuðningshópsins er að vera upplýsandi um virkt eftirlit og stuðningur fyrir þá menn sem vilja fara þessa leið eftir greiningu á krabbameininu.
Markmiðið er ekki almenn hvatning til vals á virku eftirliti heldur stuðningur við þá einstaklinga sem hafa valið þessa nálgun.
Stuðningshópurinn mun starfa í nánu samstarfi við Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins.
Stuðningshópurinn var stofnaður 20. mars 2014 og er Þráinn Þorvaldsson í forsvari fyrir hópinn.
Forsvarsmaður: Þráinn Þorvaldsson, alud@mmedia.is
Vefsíða: www.krabb.is/friskirmenn