Eldri starfsemi

Starfssemi 2019

Starfsemi 2018

Starfsemi 2017

1.0 Skrifstofa KAON

Skrifstofan er staðsett í leiguhúsnæði að Glerárgötu 24 á Akureyri og er opin mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 13:00 til 16:00 auk þess sem boðið er upp á viðtalstíma utan opnunartíma á skrifstofunni. Símatími er þessa sömu daga frá kl. 13:00-16:00. Starfsmenn eru tveir og skipta á milli sín 100% stöðu. Framkvæmdastjóri, Halldóra Björg Sævarsdóttir textílkennari og Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur auk þess sem Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari, Magnfríður Sigurðardóttir iðjuþjálfi og Brynjólfur Ingvarsson geðlæknir sem eru sjálboðaliðar starfa í nánum tengslum við félagið.

Frá og með 15.ágúst bættist við ný staða þegar Regína Ólafsdóttir sálfræðingur var ráðin í 40% starf. Vegna mikilla vaxta hjá félaginu hækkaði starfsprósentan hjá Halldóru og Katrínu í 70% frá 1.desember.

2.0 Fundir

2.1 Stjórnarfundir

Stjórnin hélt 9 bókaða stjórnarfundi á árinu 2017.

2.2 Aðalfundur KAON

Aðalfundur félagsins var haldinn á Akureyri 25.apríl 2017. Stjórn lagði fram tillögu um að árgjald til félagsins yrði 3.300 kr. og var sú tillaga samþykkt. Engar breytingar urðu á stjórn félagsins að þessu sinni

2.3 Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands

KAON átti tvo fulltrúa á aðalfundi KÍ að þessu sinni.

2.4 Samráðsfundir

Starfsmenn sóttu tvo samráðsfundi starfsmanna svæðaskrifstofa KÍ.

2.5 Formannafundur

KAON átti þrjá fulltrúa á formannafundi KÍ árið 2017.

3.0 Starfsemin

Mjög öflug starfsemi er rekin á vegum og í tengslum við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Skráðar heimsóknir á skrifstofu KAON á árinu 2017 hafa aukist til muna og eru um 1240. Þetta eru einstaklingar sem sækja Opið handavinnuhús, slökun, jóga og liðkandi æfingar, karlahittingurinn auk fræðslufunda og námskeiða sem haldin eru á vegum KAON. Einnig er hópastarf fyrir ekkjur og ekkla, aðstandendur, leshópur og út í lífið, hópur fyrir konur. Í hverri viku sækja u.þ.b. 15 einstaklingar samveru á Keramikloftinu. Þannig að þeir sem sóttu fjölbreytta þjónustu á vegum félagsins árið 2017 eru u.þ.b. 1500 einstaklingar.

3.1 Fræðsla/fundir o.fl.

Starfsmenn sinna ýmiskonar fræðslu sem tengist forvörnum, stuðningi og kynningu á starfsemi félagsins, fyrir hópa, einstaklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Opin dagur var haldin í tilefni af Bleika deginum og Mottumarsdeginum. Jólakransagerð var fyrir handavinnuhópinn og ungmenni og aðstandendur.

3.2 Endurhæfing

KAON bauð krabbameinssjúkum upp á jóga og slökun alla fimmtudaga í húsnæði félagsins sem Katrín og Regína skiptust á að vera með.

  • Vatnsleikfimi í innilaug Sundlaugar Akureyrar tvisvar í viku sem Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari sér um.
  • Einstaklingsþjálfun í samstarfi við sjúkraþjálfara á Bjargi tvisvar í viku

3.3 Opið handavinnuhús

Opið handavinnuhús er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13-16 og hefur verið mjög vel sótt. Umsjón hefur Halldóra Björg Sævarsdóttur textílkennari og er boðið upp á samveru þar sem fólk getur komið með handavinnu og spjallað saman yfir kaffibolla. Auk þess sem sérstök fræðsla um valin verkefni hefur verið nokkrum sinnum í vetur í tengslum við Opna húsið.

3.4 Keramikloftið

Á hverjum miðvikudegi frá kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu. Þar er hægt að vinna með gler, mosaik, keramik o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel sótt. KAON hefur stutt við þessa starfsemi með ýmsu móti frá byrjun.

3.5 Karlahópur

Þeir hittast alla laugardaga og spjalla og eru með fræðslufundi.

3.6 Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga

Skráð viðtöl, tölvupóstur og símtöl eru um 650. Starfsmenn hafa frá árinu 1998 haldið utan um fjölda viðtala á skrifstofunni.

3.7 Stoma

Stomasamtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.

3.8 Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík.

KAON greiðir nú reikninga fyrir afnot af íbúðum og dvöl á sjúkrahóteli að fullu og er þetta alltaf verulega stór útgjaldaliður hjá félaginu.

4.0 Tekjur/ Fjáraflanir

Helstu tekjur félagsins fyrir utan rekstarstyrk frá KÍ sem greiðir helming af launum tveggja starfsmanna og verkefnisstyrk sem gerir okkur kleift m.a. að halda námskeið fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur, eru félagsgjöldin og styrkir sem félaginu bárust frá félagasamtökum og einstaklingum á árinu. Sú velvild og stuðningur sem allir þessir fjölmörgu aðilar sýna okkur er ómetanlegur og gerir okkur kleift að styðja á margvíslegan hátt við bakið á þeim íbúum á okkar félagssvæði sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Öllum þessum aðilum færum við innilega þakkir. Án þessa stuðnings væri þetta ekki mögulegt.

5.0 Húsnæði

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að Glerárgötu 24. Salurinn rúmar um 25-30 manns í sæti, auk þess sem það er skrifstofurými þar sem einnig er hægt að taka viðtöl .

6.0 Samskipti við fjölmiðla

Starfsmenn hafa átt mjög góð samskipti við fjölmiðla á félagssvæðinu og hafa bæði birst viðtöl í Dagblöðum og tímaritum, auk þess sem allir starfsmenn hafa komið oftar en einu sinni í sjónvarpsviðtöl vegna ýmissa viðburða sem tengjast t.d. starfsemi félagins auk þess að vekja athygli á ýmsu sem hefur verið ofarlega á baugi í almennri umræðu í þjóðfélaginu. N4 sjónvarp hefur verið okkur sérlega vinsamlegt með að kynna starfsemi okkar og koma til móts við kostnað vegna auglýsinga t.d. í Sjónvarpsdagskránni. Færum við þeim bestu þakkir fyrir.

Starfsemi 2016

Skrifstofan er í leiguhúsnæði að Glerárgötu 24 á Akureyri. Fyrri hluta árs 2016 var skrifstofan opin á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 13:30 til kl. 16:00, auk þess sem boðið var upp á viðtalstíma utan opnunartíma á skrifstofunni. Símatími var þessa sömu daga kl. 10-12. Starfsmenn voru þrír og skiptu á milli sín 90% stöðu. Þorbjörg Ingvadóttir framkvæmdastjóri, Jóhanna Júlíusdóttir hjúkrunarfræðingur og Halldóra Björg Sævarsdóttir textílkennari, auk þess sem Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari starfaði í nánum tengslum við félagið. Frá og með 1. september 2016 urðu breytingar og er nú opið frá mánudegi til fimmtudags frá kl 13:00-16:00 og símatími er á sama tíma. Þorbjörg Ingvadóttir lét af störfum og Halldóra Björg Sævarsdóttir framhaldsskólakennari tók við framkvæmdastjórastöðunni í 50% starfi. Jóhanna Júlíusdóttir lét af störfum og Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur tók við hennar starfi og er í 50% stöðu.

Fundir

Stjórnin hélt átta bókaða stjórnarfundi á árinu 2016. Aðalfundur félagsins var haldinn á Akureyri 28. apríl 2016. Stjórnin lagði fram tillögu um að árgjald til félagsins yrði 3.300 kr. og var það samþykkt. Þær breytingar urðu á stjórn félagsins að Sigríður Jónsdóttir og Klara Arnbjörnsdóttir gengu úr stjórn og Ólöf Elfa Leifsdóttir og Dóróthea Jónsdóttir komu í stjórnina. Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis átti tvo fulltrúa á aðalfundi Krabbameinsfélags Íslands í maí 2016 og tvo fulltrúa á formannafundi í Skagafirði í september. Starfsmenn sóttu tvo samráðsfundi starfsmanna svæðaskrifstofa Krabbameinsfélagsins. 

Starfsemin

Mjög öflug starfsemi er rekin á vegum og í tengslum við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Skráðar heimsóknir á skrifstofu félagsins á árinu 2016 hafa aukist til muna og eru um 900. Þetta eru að langmestu leyti einstaklingar sem sækja Opið handavinnuhús, slökun, jóga og liðkandi æfingar og koma á „karlahittinginn“, auk fræðslufunda og námskeiða sem haldin eru á vegum félagsins. Í hverri viku sækja um tuttugu manns samveru á Keramikloftinu þannig að þeir sem sóttu fjölbreytta þjónustu á vegum félagsins á síðasta ári voru um 1.500. 

Fræðsla, fundir o.fl.

Starfsmenn sinna ýmiss konar fræðslu sem tengist forvörnum, stuðningi og kynningu á starfsemi félagsins, fyrir hópa, einstaklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Opinn dagur var haldinn í tilefni af Bleika deginum og jólakransagerð var fyrir ungmenni og aðstandendur.

Endurhæfing

Félagið býður bæði krabbameinssjúkum og langveikum upp á ókeypis jóga og slökun alla þriðjudaga í húsnæði félagsins, í samstarfi við Sigrúnu Jónsdóttur sjúkraþjálfara, auk þess að vera með vatnsleikfimi í innilaug Sundlaugar Akureyrar og einstaklingsþjálfun, viðtöl og ráðleggingar. 

Opið handavinnuhús

Er alla fimmtudaga kl. 13-16 og hefur það verið mjög vel sótt. Umsjón hefur Halldóra Björg Sævarsdóttur textílkennari og er boðið upp á samveru þar sem fólk getur komið með handavinnu og spjallað saman yfir kaffibolla. Auk þess sem sérstök fræðsla um valin verkefni hefur verið nokkrum sinnum. 

Keramikloftið

Á hverjum miðvikudegi kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu. Þar er hægt að vinna með gler, mósaik, keramik o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel sótt. Félagið hefur stutt við þessa starfsemi með ýmsu móti frá byrjun.

Karlahópur

Hittist alla laugardaga og spjallar og er með fræðslufundi.
Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga. Skráð viðtöl og símtöl eru um 100.
Stómasamtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.

Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis greiðir nú reikninga fyrir afnot af íbúðum og dvöl á sjúkrahóteli að fullu og er þetta alltaf verulega stór útgjaldaliður hjá félaginu.

Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis greiðir nú reikninga fyrir afnot af íbúðum og dvöl á sjúkrahóteli að fullu og er þetta alltaf verulega stór útgjaldaliður hjá félaginu.

Tekjur

Helstu tekjur félagsins, fyrir utan rekstarstyrk frá Krabbameinsfélagi Íslands sem greiðir helming af launum starfsmanna og verkefnisstyrk sem gerir okkur kleift m.a. að halda námskeið fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur, eru félagsgjöldin og styrkir sem félaginu bárust frá félagasamtökum og einstaklingum. Sú velvild og sá stuðningur sem allir þessir fjölmörgu aðilar sýna okkur er ómetanlegur og gerir okkur kleift að styðja á margvíslegan hátt við bakið á þeim íbúum á okkar félagssvæði sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra. Öllum þessum aðilum færum við innilega þakkir. Án þessa stuðnings væri þetta ekki mögulegt.

Húsnæði

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að Glerárgötu 24. Salurinn rúmar um 25-30 manns í sæti, auk þess sem rýminu er skipt þannig að auðvelt er að eiga notalegt spjall við einstaklinga á fleiri en einum stað.

Samskipti við fjölmiðla

Starfsmenn hafa átt mjög góð samskipti við fjölmiðla á félagssvæðinu og hafa bæði birst viðtöl í dagblöðum og tímaritum, auk þess sem allir starfsmenn hafa komið oftar en einu sinni í sjónvarpsviðtöl vegna ýmissa viðburða sem tengjast starfsemi félagins eða til þess að vekja athygli á ýmsu sem hefur verið ofarlega á baugi í almennri umræðu í þjóðfélaginu. N4 sjónvarp hefur verið okkur sérlega vinsamlegt með að kynna starfsemi okkar og koma til móts við kostnað vegna auglýsinga t.d. í Sjónvarpsdagskránni. Færum við þeim bestu þakkir fyrir.

Halldóra Björg Sævarsdóttir.

Starfsemi 2015

Fundir

Stjórnin hélt fimm bókaða stjórnarfundi á árinu 2015. Aðalfundur félagsins var haldinn á Akureyri 27. apríl 2015. Samþykkt var að árgjald til félagsins yrði 3.300 kr. Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis átti tvo fulltrúa á aðalfundi Krabbameinsfélags Íslands vorið 2015. Starfsmenn sóttu tvo samráðsfundi starfsmanna svæðaskrifstofa Krabbameinsfélags Íslands. Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis átti þrjá fulltrúa á formannafundi Krabbameinsfélags Íslands haustið 2015.

Starfsemin

Mjög öflug starfsemi er rekin á vegum og í tengslum við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Skráðar heimsóknir á skrifstofu félagsins á árinu 2015 eru svipaðar og undanfarin ár eða tæplega 450. Þetta eru að langmestu leyti einstaklingar sem sækja Opið handavinnuhús, slökun, jóga og liðkandi æfingar auk fræðslufunda sem haldnir eru á vegum félagsins. Einnig viljum við nefna að sl. haust var stofnaður sérstakur karlahópur sem hittist alla laugardaga í húsnæði félagsins. Í hverri viku sækja um 20 einstaklingar samveru á Keramikloftinu. Um 1.300 manns sóttu því fjölbreytta þjónustu á vegum félagsins árið 2015. Starfsmenn sinna ýmiss konar fræðslu sem tengist forvörnum, stuðningi og kynningu á starfsemi félagsins, bæði til hópa og einstaklinga.

Endurhæfing

Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari hefur boðið bæði krabbameinssjúkum og langveikum upp á ókeypis jóga og slökun alla mánudaga í húsnæði félagsins, auk þess að vera með vatnsleikfimi í innilaug Sundlaugar Akureyrar, styrktarþjálfun fyrir hópa í Eflingu og einstaklingsþjálfun, viðtöl og ráðleggingar.

Opið handavinnuhús

Er alla fimmtudaga kl. 13-17 og hefur verið mjög vel sótt. Umsjón hefur Halldóra Björg Sævarsdóttur textílkennari og er boðið upp á samveru þar sem fólk getur komið með handavinnu og spjallað saman yfir kaffibolla, auk þess sem sérstök fræðsla um valin verkefni hefur verið nokkrum sinnum í vetur.

Keramikloftið

Á hverjum miðvikudegi frá kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu. Þar er hægt að vinna með gler, mosaik, keramik o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel sótt. KAON hefur stutt við þessa starfsemi með ýmsu móti frá byrjun.

Karlahópur

Ákveðið var að stofna sérstakan karlahóp sl. haust og hittast þeir alla laugardaga og spjalla og eru með fræðslufundi.

Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga

Skráð viðtöl og símtöl eru 108. Starfsmenn hafa frá árinu 1998 haldið utan um fjölda viðtala á skrifstofunni.

Stómasamtökin 

Samtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.

Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis greiðir nú reikninga fyrir afnot af íbúðum og dvöl á sjúkrahóteli að fullu og er þetta alltaf verulega stór útgjaldaliður hjá félaginu.

Söfnun fyrir brjóstaómskoðunartæki

Á stjórnarfundi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis þann 3. febrúar kom fram hugmynd um að félagið myndi standa fyrir söfnun á brjóstaómskoðunartæki til Sjúkrahússins á Akureyri og myndi hefja söfnunina á einnar milljónar króna framlagi. Þetta var samþykkt og söfnunin fór fram og gekk mjög vel. Mjög margir, bæði einstaklingar, félög og fyrirtæki lögðu söfnuninni lið. Tækið var síðan afhent formlega 13. nóvember 2015 og var það mikil gleðistund, bæði hjá okkur í félaginu og ekki síður starfsfólki á leitarstöðinni á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Tekjur og fjáraflanir

Helstu tekjur félagsins fyrir utan rekstarstyrk frá Krabbameinsfélagi Íslands, sem greiðir helming af launum starfsmanna og verkefnisstyrk sem gerir okkur kleift m.a. að halda námskeið fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur, eru félagsgjöldin og styrkir sem félaginu bárust frá félagasamtökum og einstaklingum á árinu. Sú velvild og stuðningur sem allir þessir fjölmörgu aðilar sýna okkur er ómetanlegur og gerir okkur kleift að styðja á margvíslegan hátt við bakið á þeim íbúum á okkar félagssvæði sem greinast með krabbamein. Öllum þessum aðilum færum við innilega þakkir. Án þessa stuðnings væri þetta ekki mögulegt.

Húsnæði

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að Glerárgötu 24. Miklar endurbætur voru gerðar á húsnæðinu og salurinn okkar rúmar nú um 25-30 manns í sæti, auk þess sem rýminu er skipt þannig að auðvelt er að eiga notarlegt spjall við einstaklinga á fleiri en einum stað og segja má að vel hafi tekist til með endurbætur.

Samskipti við fjölmiðla

Starfsmenn hafa átt mjög góð samskipti við fjölmiðla á félagssvæðinu og hafa bæði birst viðtöl í Dagblöðum og tímaritum, auk þess sem allir starfsmenn hafa komið oftar en einu sinni í sjónvarpsviðtöl vegna ýmissa viðburða sem tengjast t.d. starfsemi félagins auk þess að vekja athygli á ýmsu sem hefur verið ofarlega á baugi í almennri umræðu í þjóðfélaginu. N4 sjónvarp hefur verið okkur sérlega vinsamlegt með að kynna starfsemi okkar og koma til móts við kostnað vegna auglýsinga t.d. í Sjónvarpsdagskránni. Færum við þeim bestu þakkir fyrir.

Þorbjörg Ingvadóttir

Starfsemi 2014

Aðalfundur félagsins var haldinn á Akureyri 20. maí 2014. Stjórn lagði fram tillögu um að árgjald til félagsins yrði óbreytt frá síðasta ári, eða 3.000 kr. og var sú tillaga samþykkt. Engar breytingar urðu á stjórn félagsins að þessu sinni. Stjórnin hélt fimm bókaða stjórnarfundi á árinu 2014.

Samskipti við Krabbameinsfélag Íslands

Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands var haldinn 10. maí og fulltrúi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis á þeim fundi var Friðrik Vagn Guðjónsson auk þess sem Jóhanna Júlíusdóttir og Halldóra Björg Sævarsdóttur sátu fundinn. Formannafundur Krabbameinsfélags Íslands var haldinn á Akureyri 4. október og sá Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis um alla umgjörð er varðaði fundinn. Starfsmenn sóttu tvo samráðsfundi starfsmanna svæðaskrifstofa Krabbameinsfélagsins. 

Starfsemin

Mjög öflug starfsemi er rekin á vegum og í tengslum við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Skráðar heimsóknir á skrifstofu félagsins á árinu 2014 eru 465. Þetta eru að langmestu leyti einstaklingar sem sækja Opið handavinnuhús, slökun, jóga og liðkandi æfingar auk fræðslufunda sem haldnir eru á vegum félagsins. Má þar t.d. nefna námskeiðið Gott útlit betri líðan, heilsuréttarnámskeiðið Sætt án samviskubits, námskeið í orkeringu o.fl. Í hverri viku sækja á u.þ.b. 20 einstaklingar samveru á Keramikloftinu, og skráð viðtöl (bæði komur á skrifstofu og símaviðtöl) eru skráð 114 á árinu. Kostnaður félagsins vegna aukinnar starfsemi og stuðnings við krabbameinsgreinda og fjölskyldur þeirra hefur aukist verulega á milli áranna 2013 og 2014 og munar þar tæplega 1.000.000 kr. á milli ára. Greiðsla vegna dvalarkostnaðar sjúklinga í íbúðum Krabbameinsfélagsins hefur líka aukist verulega milli ára og er nú rétt tæplega ein milljón króna miðað við rúmlega 400.000 kr. árið 2013.

Fræðsla/fundir ofl.

Starfsmenn sinna ýmis konar fræðslu sem tengist forvörnum, stuðningi og kynningu á starfsemi félagsins, bæði til hópa og einstaklinga.

Endurhæfing

Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari hefur boðið bæði krabbameinssjúkum og langveikum upp á ókeypis hugleiðslu og slökun alla þriðjudaga í húsnæði félagsins, auk þess að vera með vatnsleikfimi í innilaug Sundlaugar Akureyrar, styrktarþjálfun fyrir hópa í Eflingu og einstaklingsþjálfun, viðtöl og ráðleggingar.

Opið handavinnuhús

Opið handavinnuhús er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13-17 og hefur verið mjög vel sótt. Umsjón hefur Halldóra Björg Sævarsdóttur textílkennari og er boðið upp á samveru þar sem fólk getur komið með handa-vinnu og spjallað saman yfir kaffibolla. Auk þess sem sérstök fræðsla um valin verkefni hefur verið nokkrum sinnum í vetur í tengslum við Opna húsið.

Keramikloftið og Punkturinn

Á hverjum miðvikudegi frá kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu. Þar er hægt að vinna með gler, mosaik, keramik o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel sótt. Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur stutt við þessa starfsemi með ýmsu móti frá byrjun. Á Punktinum getur fólk komið alla fimmtudagsmorgna og nýtt þá aðstöðu sem þar er í boði og fengið aðstoð og leiðbeiningar t.d. við saumaskap, útskurð, bókband o.m.fl. 

Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga

Skráð viðtöl og símtöl eru 114. Starfsmenn hafa frá árinu 1998 haldið utan um fjölda viðtala á skrifstofunni.

Stómasamtökin

Stómasamtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.

Líf og loft samtök lungnasjúklinga

Samtökin hafa fundað í húsnæði okkar.

Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík

Um áramótin 2014/15 höfðu félaginu borist reikningar vegna dvalar í íbúðum Krabbameinsfélagsins vegna 533 gistinátta. Hver sólarhringur kostar 1.850 kr. og greiddi félagið fyrri hluta ársins 75% af hverjum reikningi, en á haustdögum ákvað stjórn Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis að greiða þessa reikninga að fullu.  

Tekjur og fjáraflanir

Helstu tekjur félagsins fyrir utan rekstarstyrk frá Krabbameinsfélagi Íslands sem greiðir helming af launum starfsmanna og verkefnisstyrk sem gerir okkur kleift m.a. að halda námskeið fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur, eru félagsgjöldin og styrkir sem félaginu bárust frá félagasamtökum og einstaklingum á árinu. Sem dæmi má nefna að Félag matreiðslumeistara á Norðurlandi var með hátíðarkvöldverð á Hótel KEA í október, þar sem fyrirtæki á svæðinu keyptu miða og buðu síðan útvöldum. Annað dæmi er fjáröflunarsamkoma sem tengdist Dömulegum dekurdögum á Icelandair hóteli í lok október.

Velvild og stuðningur

Sú velvild og sá stuðningur sem allir þessir fjölmörgu aðilar sýna okkur er ómetanlegur og gerir okkur kleift að styðja á margvíslegan hátt við bakið á þeim íbúum á okkar félagssvæði sem greinast með krabbamein. Öllum þessum aðilum færum við innilega þakkir. Án þessa stuðnings væri þetta ekki mögulegt.

Húsnæði

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að Glerárgötu 24. Miklar endurbætur voru gerðar á húsnæðinu og salurinn okkar rúmar nú um 25-30 manns í sæti, auk þess sem rýminu er skipt þannig að auðvelt er að eiga notarlegt spjall við einstaklinga á fleiri en einum stað og segja má að vel hafi tekist til með endurbætur.

Samskipti við fjölmiðla

Starfsmenn hafa átt mjög góð samskipti við fjölmiðla á félagssvæðinu og hafa bæði birst viðtöl í Dagblöðum og tímaritum, auk þess sem allir starfsmenn hafa komið oftar en einu sinni í sjónvarpsviðtöl vegna ýmissa viðburða sem tengjast t.d. starfsemi félagins auk þess að vekja athygli á ýmsu sem hefur verið ofarlega á baugi í almennri umræðu í þjóðfélaginu. N4 sjónvarp hefur verið okkur sérlega vinsamlegt með að kynna starfsemi okkar og koma til móts við kostnað vegna auglýsinga t.d. í Sjónvarpsdagskránni. 

Færum við þeim bestu þakkir fyrir.

Þorbjörg Ingvadóttir.  


Var efnið hjálplegt?