Happdrætti
Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga, leit að krabbameini og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við félagið.