Gerast félagi
Hægt er að gerast félagi í svæðafélagi eða stuðningshóp Krabbameinsfélagsins um land allt.
Ekki er hægt að gerast félagi í Krabbameinsfélagi Íslands heldur aðeins í svæðafélögunum. Félagsmenn fá upplýsingar um starfið og leggja lið með félagsgjöldum.
Aðildarfélög Krabbameinsfélags Íslands eru 29 samtals, svæðafélög og stuðningshópar.
Svæðafélögin eru 22. Þau starfa á tilteknum svæðum á landinu.
Stuðningshóparnir eru 7. Starfssvæði þeirra er í reynd allt landið þó að flestir fundir þeirra séu í Reykjavík.
Ekki er hægt að gerast félagi í Krabbameinsfélagi Íslands heldur aðeins í aðildarfélögunum. Félagsmenn fá upplýsingar um starfið og leggja lið með félagsgjöldum.