Jafningjastuðningur
Hér getur þú óskað eftir jafningjastuðningi. Þeir sem veita stuðning eru einstaklingar sem hafa greinst með krabbamein eða eru aðstandendur og hafa lokið stuðningsfulltrúanámskeiði hjá Krafti.
Stuðningsfulltrúar eru staðsettir um land allt.
Eftir að þú hefur fyllt út umsóknina og sent hana inn, mun Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður Stuðningsnetsins hafa samband við þig.
Einnig getur þú haft samband í stuðningssímann 866 9618 alla virka daga frá 8:30 til 16:00 og sálfræðingur svarar spurningum þínum.
Nánari upplýsingar um Stuðningsnetið má sjá hér.
Öll samtöl eru trúnaðarmál.