Hagsmuna­gæsla þeirra sem veikjast af krabba­meinum og aðstandenda þeirra.

Eitt af hlutverkum Krabbameinsfélagsins er að gæta hagsmuna þeirra sem veikjast af krabbameinum og aðstandenda þeirra. Til að geta sinnt því hlutverki sem best þarf félagið að vita hvað skiptir þau mestu máli og geta fengið þeirra sýn á ýmis mál.

Krabbameinsfélagið hefur því stofnað Notendaráð Krabbameinsfélagsins og býður þér að vera með.

Þú getur verið þátttakandi í Notendaráði Krabbameinsfélagsins, ef þú:

  • hefur fengið krabbamein

  • ert aðstandandi einhvers sem hefur fengið krabbamein

  • hefur misst einhvern nákominn úr krabbameini

Þátttakendur í Notendaráðinu eru 18 ára og eldri og miðað er við að ekki séu liðin meira en sex ár síðan þau eða aðstandendur þeirra luku krabbameinsmeðferð.

Þátttaka í Notendaráðinu felst í að svara spurningum sem tengjast því að lifa með krabbamein. Þátttakendur í ráðinu þurfa ekki að vita eitthvað ákveðið eða búa yfir ákveðinni þekkingu til þess að vera hluti af ráðinu – það er reynsla hvers og eins sem skiptir máli og Krabbameinsfélagið vill heyra af.


Samskipti við þátttakendur í Notendaráðinu

Ef þú ákveður að gerast þátttakandi í Notendaráðinu munum við hafa samband við þig nokkrum sinnum á ári til þess að heyra þína skoðun og reynslu. 

Þátttakan er byggð á samþykki

Til þess að Notendaráð Krabbameinsfélagsins geti náð framangreindum tilgangi sínum þarf félagið að vinna með þær persónuupplýsingar sem þátttakendur í ráðinu veita um sig. 

Spurningar og svör

Hér getur þú fundið svör við algengum spurningum um Notendaráð Krabbameinsfélagsins.

Persónuupplýsingar

Upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga vegna Notendaráðs Krabbameinsfélagsins.