Heilsufarsávinningur fyrir þig og leið til að styðja góð málefni - það gerist varla betra!
Í gegnum áratugina hefur Reykjavíkurmaraþonið verið hvati margra til að fara að stunda regluleg hlaup og göngur sem er sannarlega frábært því að þeir sem stunda reglulega hreyfingu draga úr líkum á krabbameinum og fjölda annarra sjúkdóma.
Þá er Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka rétt handan við hornið og þúsundir bíða spennt eftir því að komast á ráslínuna og taka fyrsta skrefið.
Í gegnum áratugina hefur Reykjavíkurmaraþonið verið hvati margra til að fara að stunda regluleg hlaup og göngur sem er sannarlega frábært því að þeir sem stunda reglulega hreyfingu draga úr líkum á krabbameinum og fjölda annarra sjúkdóma.
Einnig er maraþonið frábær leið til að styðja fjölmörg verðug málefni. Krabbameinsfélagið er ákaflega þakklátt þeim sem nú í ár og í gegnum tíðina hafa stutt félagið í gegnum Hlaupastyrk Reykjavíkurmaraþons.
- Krabbameinsfélagið er að sjálfsögðu með bás (T-5) á Fit & Run sýningunni í Laugardalshöll fimmtudag og föstudag, 18. og 19. ágúst - kíktu við!
Þar verður hægt að nálgast klöppur fyrir þá sem verða í hvatningarliðinu á laugardaginn og þar geta öll sem hlaupa fyrir Krabbameinsfélagið álgast smá glaðning frá félaginu fyrir stuðninginn. - Svo viljum við hvetja öll til að vera með okkur í klappliðinu á laugardaginn - Krabbameinsfélagið verður með hvatningarstöð á Ægissíðu við Dunhaga öll velkomin.
Áfram þú!