Guðmundur Pálsson 8. mar. 2022

Kóti­lettu­kvöld í tilefni Mottu­mars

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður til Kótilettukvölds þann 17. mars í tilefni Mottumars. Boðið verður upp á skemmtiatriði, fræðslu, reynslusögu og happdrætti.

Oddur Bjarni verður veislustjóri og happdrættisvinningar eru ekki af verri endanum. Til dæmis má nefna flug fyrir 2 til London frá Niceair, stóran vinning frá Bónstöð Jonna og gjafabréf frá Icelandair hotels og Geosea, ásamt mörgum öðrum vinningum. 

Viðburðurinn verður haldinn á Vitanum og byrjar kl 18:30, en húsið opnar kl 18. 

Aðeins 100 sæti í boði!

Miðaverð er að lágmarki 5.000 kr.

Hægt er að panta miða með því að hringja í síma 461-1470 eða senda tölvupóst á netfangið kaon@krabb.is

Á staðnum verða kynningabásar frá félaginu og Hörður verður hjá okkur að selja mottunælur úr gamalli mynt til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.

Viðburðurinn er styrktur af Velunnarasjóði Krabbameinsfélagsins.

Kotillettuauglysing-i-dagskrana

KRA_velunnarar_bordi_CMYK_blar_vinstri


Fleiri nýjar fréttir

29. sep. 2023 : Slökkti fyrst eld og keypti svo Bleiku slaufuna

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að sala Bleiku slaufunnar hófst á miðnætti í dag, 29. september. Nágranni Krabbameinsfélagsins, Bergrún Ingimarsdóttir, varð fyrst til að tryggja sér slaufu ársins. Það mátti þó litlu muna að það tækist ekki vegna elds sem hún þurfti að ráða niðurlögum að.

Lesa meira

27. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023

Gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir (by lovisa) og Unnur Eir Björnsdóttir (EIR) eru hönnunarteymið á bak við Bleiku slaufuna í ár. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverk sitt, en slaufan í ár er sú bleikasta sem við höfum séð lengi

Lesa meira

26. sep. 2023 : "Mikilvægt að segja líka frá því sem gengur vel"

Styttri legutími, skjótari bati, lægri dánartíðni og betri lifun. Ný aðferðafræði við skurðaðgerðir við lungnakrabbameini var tekin upp nærri því á einni nóttu og hefur gefið reglulega góða raun í baráttunni gegn lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Viktor Ásbjörnsson læknanemi segja hér frá byltingarkenndri þróun í skurðaðgerðum við lungnakrabbameini og mikilvægi rannsókna og stuðnings við þær fyrir framþróun í málaflokkinum. 

Lesa meira

26. sep. 2023 : Takk fyrir komuna

Nýafstaðið málþing í tilefni af alþjóðadegi krabbameinsrannsókna vakti greinilega forvitni margra, því húsfyllir var í Skógarhlíðinni auk þess sem fjölmargir fylgdust með í streymi. Krabbameinsfélagið vill koma á framfæri kærum þökkum til allra sem tóku þátt.

Lesa meira
Elísa Dögg Björnsdóttir frá TVG-Zimsen, Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðsmála og  fjáröflunar hjá Krabbameinsfélaginu og Magnús Ingi Guðmundsson frá IDÉ House of brands, sem sér um framlei

25. sep. 2023 : Nú er það bleikt!

Að baki átaki eins og Bleiku slaufunni búa fjölmörg handtök og undirbúningur hefst mörgum mánuðum áður en afurðin berst landsmönnum í hendur og hjörtu. Það er því alltaf stór stund þegar við fáum sjálfa slaufuna í hús og niðurtalningin fyrir upphaf átaksins hefst formlega.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?