Guðmundur Pálsson 16. des. 2018

Dregið á aðfanga­dag í jóla­happ­drætti Krabba­meins­félags­ins

Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Að þessu sinni fá konur senda miða og eru vinningar 286 talsins að verðmæti um 47,7 milljónir króna. 

  • Aðalvinningurinn, að verðmæti 4.490.000 krónur, er Peugeot 3003 Allure frá bílaumboðinu Brimborg. 
  • Þrír vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. 
  • 120 vinningar eru í formi úttektar hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. 
  • Einnig eru 162 vinningar í formi úttektar hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. 

Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið var 24. desember. Listi yfir vinningsnúmer verður birtur hér á vefnum síðdegis föstudaginn 28. desember og í dagblöðum laugardaginn 29. desember.


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?