Ása Sigríður Þórisdóttir 14. des. 2023

Töfrandi jólaleyniskógur bar sigur úr býtum

Það er óhætt að segja að hollustan, hugmyndaflugið og litagleðin hafi ráðið ríkjum í jólaleik Krabbameinsfélagsins sem haldinn var í samstarfi við Banana og Hagkaup. Úrslit voru kynnt í Hagkaup Smáralind um helgina þar sem keppendur settu grænmeti, ávexti og ber í jólalegan og skemmtilegan búning. Sjón er sögu ríkari. 

Viðbrögðin við jólaleiknum voru góð og úrslitin voru tilkynnt í Hagkaup Smáralind um helgina. Eins og myndirnar sýna þá er hægt að gera skemmtilegar útfærslur án þess að það sé of tímafrekt eða flókið þó vissulega taki sumar hugmyndirnar ögn lengri tíma en aðrar. 

Framlögin voru afar fjölbreytt og skemmtileg - Sjón er sögu ríkari 

1-2-og-3.saeti

 1. sæti: Töfrandi jólaleyniskógur, Rūta Vaišvilaitė

Rūta fékk að launum 60.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 40.000 kr. gjafabréf frá Hagkaup.

Það tók Rūtu nokkra daga að finna út hvað hún ætlaði að búa til. Fyrst datt henni í hug að búa til snjókarl en fann ekkert hentugt hvítt grænmeti. Þá varð henni hugsað til íslensku jólasveinanna og ákvað að gera töfrandi jólaleyniskóg.

Mynd_vinnings_leikur

Rūta bjó jólasveinana til með því að skera endana af sítrónu, fæturna gerði hún úr efsta hluta jalapenó, skeggið úr hvítri radísu og nefið skar hún svo út úr nýpu. Jólasveinana setti hún svo saman með tannstönglum. Trén eru úr spergilkáli, fest á nýpu með tannstönglum. Jólahúsið er epli sem búið er að hola að innan, og skera svo út hurð og glugga. Til að búa til jólasnjó setti Rūta hvíta radísu í blandara og þakti botninn á bakkanum með honum. Ofan á raðaði hún svo trjánum, jólasveinunum og húsinu. Þegar þetta var allt komið á bakkann fannst henni samt eitthvað vanta. Tók sér smá pásu og fékk sér mandarínu. Þegar henni varð litið á mandarínuhýðið sá hún að það var fullkominn litur til að setja lokapunktinn á verkið þannig að hún reif börkinn í litla bita, raðaði á bakkann og þá fannst henni þetta komið.

  • Innihald: Spergilkál, nýpa, epli, sítróna, rautt jalapeno, hvítar radísur og mandarínuhýði.

2. sæti: Litskrúðugur ávaxta- og berjakrans, Miglė Milinauskaitė

Miglė fékk 25.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 25.000 gjafabréf frá Hagkaup.

IMG_1696

Miglė skar miðhlutann úr vatnsmelónu og notaði glas til að gera hringinn í miðjuna. Síðan byrjaði hún neðst og stakk bláum og grænum vínberjum með tannstönglum í hringinn og berjunum þar á eftir. Efst setti hún svo myntublöð sem hún festi með tannstönglu

  • Innihald: Vatnsmelóna, rauð og græn vínber, brómber, trönuber, bláber, jarðarber, rifsber og mynta.

3. sæti: Fallegt og girnilegt ávaxtatré, Ingibjörg Pálsdóttir

Ingibjörg fékk 15.000 kr. peningaverðlaun ásamt ávaxtakörfu frá Bönunum og 15.000 gjafabréf frá Hagkaup.

IMG_1690

Ingibjörg skar endana af epli til að nota sem stoð, valdi stærstu gulrót sem hún fann og reyndi að hafa hana sem líkasta keilu og festi gulrótina við eplið með tannstönglum. Jarðaberin eru svo fest á með hálfum tannstönglum. Síðan prentaði hún út stjörnu og notaði sem skapalón til að skera út stjörnu úr rófu sem hún festi á topp trésins.

  • Innihald: Gulrót, epli, jarðaber, mynta og rófa

Einnig voru veitt aukaverðlaun frá Lemon fyrir þessar skemmtilegu útfærslur:

IMG_1601

Image00245

Ramona Pittroff gerði þessa skemmtilegu útfærslu af Trölla

Innihald og lýsing: Jarðaber (í húfuna), blómkál (í húfukappann og dúsk), gul paprika (augu), trönuber (augasteinn), græn vínber (andlit), jöklasalat (undirlag andlits), gúrkuhýði (andlistdrættir og augnabrúnir) og tannstönglar til að festa augasteina.

 

Nína Margrét Jónsdóttir - Vegan - vagga á jólanótt

„Þá nýfæddur Jesú í plómunni lá,Image00134á jólunum fyrstu var margt grænmeti að sjá.
Þau hámuðu í sig frá fati til fats,
því hann var nú fæddur í líkingu mats".

  • Innihaldslýsing: Tómatar, regnbogagulrætur, rófur, sellerí, paprika, klettasalat, salat, spergilkál, blómkál, sótróna, plóma, vínber, spírur, brómber og ólífa.


Image00243
Miglė Milinauskaitė
, sem lenti í 2. sæti, skilaði einnig inn þessum skemmtilegu appelsínuskálum.

  • Innihaldslýsing: Appelsínur, melónur( vatnsmelóna og cantaloupe), mandarínur, bláber, kókosflögur,rósmarín og heimagert hunang.

 

 

Sigríður og Brimar voru með þessa skemmtilegu útfærslu

Image00246_1702397219516

Jasur Vohidov var með þessar litríku og flottu útfærslur

Image00238IMG_1625

 

Dómnefnd skipuðu:

  • Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, formaður dómnefndar.
  • Eva Ruza, skemmtikraftur.
  • Sjöfn Þórðardóttir, umsjónarmaður matarvefs Mbl.is.
  • Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu. 

IMG_1708

 

 

 

 

 

 

 

 


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?