Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 2. feb. 2020

Tengsl á milli mikillar líkamsfitu og illvígs krabbameins í blöðruhálskirtli

Alþjóðakrabbameinsrannsóknasjóðurinn gaf á síðasta ári út skýrslu, þar sem fram kemur að offita (líkamsþyngdarstuðull yfir 30) eykur líkur á ýmsum krabbameinum, þar á meðal langt gengnu krabbameini í blöðruhálskirtli. 

Ný íslensk rannsókn, sem unnin var í samstarfi við Harvard háskóla, sýnir fram á tengsl milli mikillar líkamsfitu og illvígs krabbameins í blöðruhálskirtli. Í rannsókninni var stuðst við gögn frá Hjartavernd og Krabbameinsskrá. Rannsóknin var birt í tímaritinu Cancer og New York Times gerði rannsóknina að umfjöllunarefni. 

„Eftir okkar bestu vitund þá er þetta fyrsta rannsóknin sem skoðar á framsýnan hátt áhrif mikillar fitusöfnunar á mismunandi stöðum í líkamanum á krabbameinsáhættu í blöðruhálskirtli. Það sýnir sig að mikil kvið- og lærafita tengist illvígu krabbameini í blöðruhálskirtli,“ segir dr. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, einn rannsakendanna og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu. 

Alls tóku rúmlega 1.800 karlmenn þátt í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar, þar sem staðsetning líkamsfitu var mæld í líkamsskanna. Enginn þátttakenda var með krabbamein í blöðruhálskirtli við upphaf rannsóknarinnar. Þeim var svo fylgt eftir að meðaltali í níu ár. 

Eftir að tekið hafði verið tillit til annarra áhættuþátta þessa krabbameins, kom í ljós að fyrir hvert staðalfrávik umfram meðaltal í fitusöfnun á lærum og kviði, jókst áhættan á langt gengnu meini í blöðruhálskirtli um 30%. Einnig voru karlmenn sem höfðu lægri líkamsþyngdarstuðul en mikla kviðfitu í meiri áhættu á að greinast með langt gengið mein og jafnframt á að látast vegna krabbameins í blöðruhálskirtli. 

Jóhanna segir að niðurstöður rannsóknarinnar bendi til þess að skoða þurfi nánar af hverju staðsetning líkamsfitu skipti máli í þessu tilliti og hvaða líffræðilegu ferlar (til dæmis áhrif frá hormónum) hafa þar áhrif. 

Jóhanna segir: „Einnig sýna niðurstöðurnar fram á mikilvægi þess að stefna að hæfilegri líkamsþyngd alla ævi, til dæmis með því að hreyfa sig reglulega og borða hollan og fjölbreyttan mat.“

Greinin birtist í Blaði Krabbameinsfélagsins 2020.


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?