Guðlaug B. Guðjónsdóttir Krabbameinsf. höfuðb.sv. 2. jún. 2017

Sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins 2017 - dregið 17. júní

Nú hafa verið sendir út miðar í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins. Í því fá karlmenn heimsenda miða. Vinningar eru að þessu sinni 276 talsins að verðmæti um 46,6 milljónir króna. Aðalvinningurinn er Suzuki S-Cross frá Suzuki bílum hf. að verðmæti um 5,2 milljónir króna. Tveir vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. Vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur, eru 112 talsins. Einnig eru 160 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 17. júní.  

Þú getur keypt miða í happdrættinu í netverslun Krabbameinsfélagsins hér. Sendingarkostnaður er innifalinn.

Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein helsta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga, leit að krabbameini og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við félagið. 

Ár hvert greinast að meðaltali um 1.500 manns með krabbamein hér á landi. Lífslíkur krabbameins-sjúklinga hafa aukist mjög mikið og er það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabbameins, greiningu á fyrri stigum og markvissari meðferð. Nú eru um 14.000 einstaklingar á lífi sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.

Sumarhappdraetti_mynd-fyrir-vef

 


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Takk sjálfboðaliðar!

Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða og Krabbameinsfélagið vill nýta tækifærið og þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum í þágu félagsins. Í tilefni dagsins fengum við nokkra sjálfboðaliða til að segja okkur frá því hvers vegna þau velja að leggja baráttunni gegn krabbameinum lið.

Lesa meira

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?