Sigurlaug Gissurardóttir 20. maí 2016

Sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins 2016 - dregið 17. júní!

Stuðningur við margþætta starfsemi félagsins

Nú hafa verið sendir út miðar í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins. Í því fá karlmenn heimsenda miða. Vinningar eru að þessu sinni 228 talsins að verðmæti um 39,4 milljónir króna.

Aðalvinningurinn er Toyota RAV4 HYBRID frá bílaumboðinu Toyota að verðmæti um 5,9 milljónir króna. Annar og þriðji aðalvinningarnir eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. Níutíu vinningar eru í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. Einnig eru 135 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 17. júní. (sjá úrdrátt með því að smella hér)

Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein helsta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga, leit að krabbameini og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við félagið.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8. Upplýsingar eru gefnar í síma 540 1900. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa og tilkynna þeim um vinninga. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur umsjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélagsins.

Ár hvert greinast að meðaltali um 1.450 manns með krabbamein hér á landi. Hjá körlum er krabbamein í blöðruhálskirtli algengast og brjóstakrabbamein hjá konum. Í öðru sæti er lungnakrabbamein hjá báðum kynjum og ristilkrabbamein í því þriðja. Nú eru um 13.100 einstaklingar á lífi sem fengið hafa krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?