Sumarhappdrættið: Drögum 17. júní - átt þú miða?
Hægt er að greiða heimsenda miða í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins til og með 17. júní í heimabanka eða netbanka og kaupa miða á skrifstofu og í netverslun.
Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8 en þar verður opið 15. og 16. júní frá kl. 10:00 til kl. 14:00 og á 17. júní frá kl. 10:00 til kl. 16:00. Þeir sem vilja borga miða með greiðslukorti geta hringt í síma 540 1917.
Dregið verður 17. júní. Vinningaskrá verður birt á vefsíðu Krabbameinsfélagsins þann 18. júní og í dagblöðum miðvikudaginn 19. júní.