Stuðningur við fagaðila sem vinna með börnum eftir foreldramissi
-
Ásgeir R. Helgason, dósent í sálfræði og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu.
Krabbameinsfélagið undirbýr nú opnun fræðslu-, stuðnings- og handleiðslumiðstöðvar sem ætluð er fagaðilum sem vinna í nærumhverfi barna sem misst hafa foreldri.
Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands má gera ráð fyrir að um 100 börn missi foreldri ár hvert. Með „fagaðilum“ er átt við til dæmis kennara, skólastjórnendur, frístundakennara, skólasálfræðinga og skólahjúkrunarfræðinga. Ef á þarf að halda mun félagið einnig bjóða heilbrigðisstarfsfólki, sem kemur að umönnun barnanna, upp á stuðning og handleiðslu.
„Það er búið að setja lög um að börn sem missa foreldri eigi rétt á ýmsum stuðningi og fagfólkið sem á að sinna þessum börnum þarf að hafa einhver úrræði og aðgang að handleiðslu og öðrum stuðningi,“ segir Ásgeir R. Helgason, verkefnastjóri verkefnisins og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu.
Í handleiðsluteymi Krabbameinsfélagsins verður fólk með menntun í félagsráðgjöf, sálfræði og hjúkrunarfræði sem hefur reynslu og sérþjálfun í umönnun barna í sorg.
Fulltrúar Krabbameinsfélagsins hafa heimsótt leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, aðallega á Norðurlandi. Markmið þessara vettvangsheimsókna er að ræða við skólastjórnendur og kennara um þeirra reynslu af umönnun barna sem misst hafa foreldri og gera þarfagreiningu sem verður undirstaða frekari vettvangsheimsókna.
Samstarf er í gangi við hóp sem unnið hefur að þróun laga sem eiga að tryggja það að börn sem missa foreldri fái viðunandi hjálp. Lögin hafa nýlega verið samþykkt á Alþingi. Krabbameinsfélagið hefur einnig hafið samstarf við nýstofnaða Sorgarmiðstöð, sem er til húsa í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, varðandi miðstöðina.