Guðmundur Pálsson 18. nóv. 2020

Uppbókað hjá Leitarstöð fram að áramótum

Mikil aðsókn hefur verið í skimanir hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands síðastliðnar vikur og aukið framboð á tímum hefur ekki dugað til. 

Heilbrigðisráðherra kynnti í mars 2019 tillögur að framtíðarfyrirkomulagi skimana fyrir krabbameinum. Í samræmi við tillögurnar og ákvörðun ráðherra frá því í júní 2020 taka opinberar stofnanir við skimuninni frá og með 1. janúar 2021. Starfsemi Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins verður því hætt um áramótin.

Konur sem hafa fengið boð en hafa ekki þegar bókað tíma eru hvattar til að fylgjast með upplýsingum um bókanir í skimanir á nýju ári á vef heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?