Guðmundur Pálsson 29. feb. 2020

Mottu­mars­sokkarnir slá í gegn

Sérhannaðir Mottumarssokkar Krabbameinsfélagsins eru komnir í sölu - eftirspurnin er mikil og því vissara að tryggja sér eintak í tíma.

Sérhannaðir sokkar Krabbameinsfélagsins í tilefni af Mottumars hafa vakið mikla lukku. Í ár bjóðum við nýja og glæsilega Mottumarssokka til styrktar átakinu. Hönnuður þeirra er Gunnar Hilmarsson, yfirhönnuður Herrafataverzlunar Kormáks og Skjaldar. Salan hefst í dag, laugardaginn 29. febrúar og lýkur laugardaginn 14. mars. Sokkarnir eru til í fullorðins og barnastærðum í vefverslun Krabbameinsfélagsins en í fullorðinsstærðum í verslunum um land allt. 

Mottumars er árlegt verkefni Krabbameinsfélagsins, sem er í senn vitundarvakning um krabbamein hjá körlum og fjáröflun fyrir félagið. Í ár leggjum við áherslu á gildi hreyfingar sem forvarnar gegn krabbameinum. Rannsóknir sýna að reglubundin hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum auk þess sem hreyfing er til góðs fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein.

Með heilsusamlegum lífsstíl er hægt að koma í veg fyrir 4 af hverjum 10 krabbameinum. Krabbameinsfélagið vinnur að forvörnum gegn krabbameinum og hefur það að markmiði að fækka þeim sem greinast með krabbamein. Starfsemi félagsins byggir alfarið á styrkjum einstaklinga og fyrirtækja og með kaupum á Mottumarssokkum leggur fólk stórt lóð á vogarskálarnar. 

Kæru landsmenn, upp með sokkana!

KRA_MM2020_Skyli_400x600_Sokkar-4_at2x


Fleiri nýjar fréttir

1. des. 2023 : Minningarorð um Jón Þorgeir Hallgrímsson

Jón Þorgeir Hallgrímsson, læknir, fyrrverandi formaður Krabbameinsfélags Íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur lést þann 21. nóvember sl., 92 ára að aldri. Jóns Þorgeirs er minnst hjá Krabbameinsfélaginu með mikilli virðingu og þakklæti. Aðstandendum vottar félagið innilega samúð. 

Lesa meira

28. nóv. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira
Ljósmynd: Thule Photos

28. nóv. 2023 : Dýrmætt að vita að maður stendur ekki einn í þessu

Flestir sem hafa upplifað það að missa einhvern náinn sér eru líklega sammála um að sorgin er erfið og þungbær. Sorg barna er sérstaklega vandmeðfarin og það getur skipt máli fyrir úrvinnslu þeirra að fá réttan stuðning frá nærsamfélaginu. Hannes missti eiginkonu sína úr krabbameini árið 2022, en þau áttu tvær dætur saman. Hann segir hér frá sorgarúrvinnslunni og helstu úrræðum sem þau feðgin hafa nýtt sér, en þar á meðal er stuðningur Krabbameinsfélagsins við börn sem missa foreldri.

Lesa meira

28. nóv. 2023 : „Mig langaði til að taka þessa byrði og bera hana sjálf“

Rakel Ósk Þórhallsdóttir, eigandi vefverslunarinnar Central Iceland, hefur undanfarin þrjú ár stutt dyggilega við Bleiku slaufuna, en í heildina telur framlag hennar 7.385.000 kr. Rakel segir hér frá drifkraftinum á bak við verkefnið, en hún hefur persónulega tengingu við málstaðinn.

Lesa meira

23. nóv. 2023 : Fulltrúar Krabbameinsfélagsins á faraldsfæti

Um þessar mundir stendur Krabbameinsfélagið fyrir átaksverkefni sem miðar að því að fjölga í þeim góða hópi Velunnara sem styðja þétt við bakið á félaginu með mánaðarlegum framlögum. Í nóvember heimsækjum við Selfoss.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?