Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 6. feb. 2019

Ráðstefna um skimun fyrir krabbameinum

Krabbameinsfélagið býður til örráðstefnu miðvikudaginn 6. mars kl. 15-17:15 um skimun fyrir krabbameinum undir yfirskriftinni: Screening for cancer of the cervix, breast and colorectum: Organization, success, pitfalls and current challenges

Markmið ráðstefnunnar er að auka þekkingu á framkvæmd skimana fyrir krabbameinum með því að skoða stöðuna hér á landi og kynnast reynslu nágrannaþjóðanna.

Ráðstefnan er fyrst og fremst ætluð fagfólki og fer fram á ensku.

Ráðstefnan fer fram miðvikudaginn 6. mars kl. 15 - 17:15 í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8. Boðið verður upp á kaffiveitingar frá kl. 14:45.

Erindi flytja:

Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands

Giske Ursin, yfirmaður norsku krabbameinsskrárinnar og framkvæmdar skimana í Noregi

Nea Malila, yfirmaður finnsku krabbameinsskrárinnar og framkvæmdar skimana í Finnlandi

Thor Aspelund, formaður skimunarráðs

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra

Ráðstefnuslit: Alma D. Möller, landlæknir.

Fundarstjóri: Helgi Birgisson, yfirlæknir Krabbameinsskrár

Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Skráning fer fram hér eða á krabb@krabb.is


Fleiri nýjar fréttir

1. jún. 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?