Ása Sigríður Þórisdóttir 19. des. 2023

Opnunartími yfir jól og áramót

Starfsemi Krabbameinsfélagsins verður að mestu hefðbundin yfir hátíðirnar. Vekjum sérstaka athygli á að afgreiðsla vefverslunar og jólahappdrættis verður opin á Þorláksmessu frá 10:00 - 16:00 og aðfangadag frá kl. 09:00 til kl. 12:00.

Ráðgjafar félagsins eru til taks alla virka daga í Skógarhlíð og í síma 800 4040 , en lokað er 25. og 26. desember. Hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og verður þeim svarað við fyrsta tækifæri.

Vefverslunin er alltaf opin og er hægt að sækja pantanir á Þorláksmessu og til kl.12:00 á aðfangadag. Pantanir sem berast eftir það verða afgreiddar 2. janúar. Afgreiðsla vefverslunar verður lokuð milli jóla og nýárs.

Opnunartími:

  • 22. desember opið frá kl. 08:30 – 16:00.
  • 23. desember opið frá kl. 10:00 - 16:00
  • 24. desember opið frá kl. 09:00 – 12:00.
  • 25.- 26. desember lokað.
  • 27. - 29. desember opið frá kl. 08:30 – 16:00. Afgreiðsla vefverslunar verður lokuð milli jóla og nýárs.
  • 2. janúar hefðbundin opnun frá kl. 08:30 – 16:00.

Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?