Björn Teitsson 22. jan. 2021

Lífið er núna - vitundarvakning og fjáröflun Krafts

  • _C3A0757_minni

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, verður með vitundarvakningu og fjáröflunarherferð dagana 21. janúar til 4. febrúar. Markmið herferðarinnar er að vekja athygli á hversu marga krabbamein hefur áhrif á, selja húfur til styrktar félaginu og starfsemi þess sem og afla styrkja fyrir félagið.  

„Um 70 ungir einstaklingar greinast með krabbamein á hverju ári. Við viljum vekja athygli á því að krabbamein snertir ekki einungis þann sem greinist með krabbamein heldur fjölmarga í kringum hann þar á meðal maka, foreldra, börn, vini, vandamenn og jafnvel vinnufélaga. Að meðaltali má segja að um 7-10 nánir aðstandendur standi að baki hverjum einstakling,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.

Til að styðja við starfsemi Krafts getur fólk gerst mánaðarlegir styrktaraðilar, sent inn staka styrki eða keypt íslenska „Lífið er núna“ húfu sem var framleidd fyrir átakið. „Heiða Nikita hannaði húfuna fyrir okkur og er hún framleidd af Varma í samstarfi við Ístex. Okkur fannst ekkert annað koma til greina en að vera með íslenska hönnun og framleiðslu á þessum tímum og kemur húfan einstaklega vel út,“ segir Hulda. Húfan er til í svörtu og appelsínugulu og fæst í vefverslun Krafts, verslun og vefverslun Símans og í verslunum Geysis.

Appelsínugulur ljómi mun ráða ríkjum í janúar þar sem Ráðhús Reykjavíkur, Háskóli Íslands, Perlan og Hof á Akureyri verða lýst appelsínugul til að vekja fólk til umhugsunar um ungt fólk og krabbamein. Eins verður Kirkjan á Sauðárkróki lýst appelsínugul þar sem einn viðmælandinn í herferðinni er þaðan.

„Við hvetjum auk þess fólk til að deila reynslu sinni á samfélagsmiðlum um það hvernig krabbamein hefur haft áhrif á það og sýna þannig samstöðu og hversu marga krabbamein snertir. Það er til að mynda hægt að fara inn á vefsíðuna okkar www.lifidernuna.is og fylla þar út form um hvernig krabbamein hefur haft áhrif á þig hvort sem þú ert faðir, móðir, vinkona, sonur o.s.frv. þeim upplýsingum geturðu svo deilt á Facebook með sérstakri mynd. Með því að því að deila sýnir þú samstöðu og færð sent til baka upplýsingar um þá þjónustu og stuðning sem gæti gagnast þér,“ segir Hulda að lokum.

Lokahnykkur átaksins verður þann 4. febrúar, á alþjóðadegi gegn krabbameinum. Þá verður settur upp flottur rafrænn viðburður með frábæru listafólki sem hægt verður að horfa á í gegnum netstreymi þar sem við miðlum til áhorfenda hvernig þeir geta styrkt starfið hjá Krafti. Viðburðurinn er í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkur og verður nánar sagt frá honum síðar.


Nánari upplýsingar veitir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts í síma 866-9600 og tölvupósti hulda@kraftur.org eða Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Krafts í síma 693-0175 og tölvupósti laila@kraftur.org


Fleiri nýjar fréttir

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

1. des. 2023 : Minningarorð um Jón Þorgeir Hallgrímsson

Jón Þorgeir Hallgrímsson, læknir, fyrrverandi formaður Krabbameinsfélags Íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur lést þann 21. nóvember sl., 92 ára að aldri. Jóns Þorgeirs er minnst hjá Krabbameinsfélaginu með mikilli virðingu og þakklæti. Aðstandendum vottar félagið innilega samúð. 

Lesa meira
Ljósmynd: Thule Photos

28. nóv. 2023 : Dýrmætt að vita að maður stendur ekki einn í þessu

Flestir sem hafa upplifað það að missa einhvern náinn sér eru líklega sammála um að sorgin er erfið og þungbær. Sorg barna er sérstaklega vandmeðfarin og það getur skipt máli fyrir úrvinnslu þeirra að fá réttan stuðning frá nærsamfélaginu. Hannes missti eiginkonu sína úr krabbameini árið 2022, en þau áttu tvær dætur saman. Hann segir hér frá sorgarúrvinnslunni og helstu úrræðum sem þau feðgin hafa nýtt sér, en þar á meðal er stuðningur Krabbameinsfélagsins við börn sem missa foreldri.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?