Leitarstöðin: Mistök í útsendingu rafrænna boðsbréfa á island.is
-
Guðrún Birgisdóttir, geislafræðingur, í brjóstamyndatöku á Leitarstöð 2019.
Þau mistök urðu á útsendingu rafrænna boðsbréfa í skimanir frá Leitarstöðinni að þau bárust í pósthólf kvenna á island.is heilum mánuði eftir að pappírsbréfin voru send út.
Þetta hefur valdið þeim misskilningi að margar konur hafa talið sig þurfa koma aftur í skoðun. Beðist er velvirðingar á þessu. Ef konur hafa fengið boð frá Leitarstöðinni í desember um að kominn sé tími á skimun, hvort heldur sem er fyrir legháls- eða brjóstakrabbameini, þá er í engum tilvikum nauðsynlegt að bregðast við rafrænu boði í skimun sem borist hefur á island.is í janúar.“