Ása Sigríður Þórisdóttir 9. jún. 2023

Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Grein birtist í Skoðun á Visir.is 9. júní 2023

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Oft er þá lendingin að segja „Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig“. Á bak við slík orð er meiningin jafnan góð. Staðreyndin er þó sú að þegar tekist er á við breytingar og aukið álag sem krabbamein getur haft fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans hefur viðkomandi ekki alltaf getu eða burði til að biðja um aðstoð. Það getur líka verið stórt og erfitt skref að þiggja hjálpina. Flestir segja að það að finna samhug og stuðning frá nærumhverfinu hafi jákvæð áhrif á líðan þeirra og gefi styrk til að takast á við aðstæðurnar. Að sama skapi getur það verið erfið og íþyngjandi reynsla fyrir viðkomandi að upplifa ekki stuðning frá fólki sem væntingar voru um að yrðu til staðar. Sú upplifun hefur oft áhrif á samskiptin og tengslin til frambúðar. Oft tjáir fólk sig um að það hafi komið á óvart hverjir voru ekki til staðar í veikindunum en líka hverjir voru til staðar. Vert er að hafa í huga að krabbamein hefur áhrif á alla fjölskylduna og oftast hafa bæði sá sem hefur greinst, maki og aðrir fjölskyldumeðlimir þörf fyrir samhug og stuðning frá umhverfinu.

Ef einhver sem þér er annt um hefur greinst með krabbamein eða er í fjölskyldu hans gæti verið gott að hafa eftirfarandi í huga.

  • Skoðaðu hvernig þér líður. Er eitthvað að valda þér óöryggi eða vanlíðan varðandi samskipti við viðkomandi eftir að krabbameinið greindist? Oft kann fólk vel að meta einlægni á borð við „ Ég veit ekki hvað ég á að segja.“
  • Okkur hættir stundum til að reyna að lesa í það hvað einstaklingurinn er að hugsa. Oft er betra að spyrja viðkomandi beint hvers hann þarfnast og hvernig honum finnst best að hafa hlutina.
  • Á hvaða hátt sérðu fyrir þér að geta orðið að liði eða stutt við viðkomandi. Mikilvægt er að þú finnir þín mörk varðandi hve mikið svigrúm þú telur þig hafa og að þú ætlir þér ekki um of.
  • Yfirleitt er fólk ekki að biðja um að þú segir eitthvað til að því líði betur. Oft er það besta sem hægt er að gera fyrir viðkomandi að hlusta og sýna skilning án þess að reyna að breyta líðan hans með of mikið af lausnum og ráðum.
  • Forðastu að gefa ráðleggingar eða að bera reynslu viðkomandi saman við reynslu annarra sem þú þekkir nema að biðja um leyfi fyrir því áður.

Við sem störfum sem faglegir ráðgjafar hjá Krabbameinsfélaginu heyrum oft fallegar sögur af því á hvaða hátt vinir og ættingjar eru til staðar fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein og fjölskyldur þeirra. Hér koma nokkrar hugmyndir og ef til vill getur þú nýtt einhverja þeirra.

  • Bara það að senda reglulega hugulsöm skilaboð til dæmis í gegnum messenger eða tölvupóst eða að hringja, getur gert meira en þig grunar. Gott er að taka fram að þú skiljir ef viðkomandi hefur ekki orku til að svara þér.
  • Að bjóðast til að sækja barn/börn í skólann eða að gera eitthvað skemmtilegt með þeim getur verið mikil aðstoð.
  • Stundum taka vinahópar sig til um ákveðið tímabil og skiptast á að færa fjölskyldunni mat einhvern dag eða daga í vikunni.
  • Oft er orkan og einbeitingin til að framkvæma verk sem eru hluti af daglegu lífi af skornum skammti og á það bæði við þann sem tekst á við krabbamein og fjölskyldu hans. Það getur því, til dæmis, verið mikil hjálp í að bjóðast til að versla í matinn, þrífa bílinn eða fara með hann í skoðun.

  • Það er mikils virði fyrir þann sem tekst á við krabbamein og fjölskyldu hans, að næra gleðina og að hafa eitthvað til að hlakka til. Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað stórt. Bara það að skipuleggja bíóferð eða að fara á kaffihús getur gefið tilbreytingu í lífið og hjálpað viðkomandi að dreifa huganum.

  • Hreyfing hefur jákvæð áhrif á líkamlega og andlega líðan og ekki síst þegar henni fylgir góður félagsskapur. Kannski gætir þú boðist til að fara reglulega með viðkomandi í göngutúr.

  • Fyrir vinnufélaga og vinahópa er hægt að skrifa uppbyggileg orð eða skilaboð á miða til viðkomandi sem allir setja í eina krukku til dæmis.


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?