Ása Sigríður Þórisdóttir 28. apr. 2023

Kær heimsókn í Skógarhlíðina

  • Mynd: frá vinstri Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, Sigrún Elva Einarsdóttir, Halla Þorvaldsdóttir, Sólveig Sigurðardóttir, Guðlaug M. Ingvadóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson

Krabbameinsfélagið bauð á dögunum nýstofnuðum Samtökum fólks með offitu (SFO) í heimsókn í Skógarhlíðina í þeim tilgangi að kynnast betur starfsemi þeirra með samvinnu um bætta heilsu að leiðarljósi.

Meðal meginmarkmiða Krabbameinsfélagsins eru að vinna markvisst að því að draga úr fjölda krabbameinstilfella og fækka dauðsföllum af völdum krabbameina. Offita er meðal þeirra áhættuþátta sem aukið geta líkur á krabbameinum. Því er mikilvægt að geta rætt um offitu í þeim tilgangi að vekja athygli á þeirri krabbameinsáhættu sem fylgir sjúkdómnum án þess að auka fordóma. Samstarf við Samtök fólks með offitu er Krabbameinsfélaginu því afar mikilvægt.

Fundurinn var afar ánægjulegur og upplýsandi fyrir alla sem tóku þátt.

Við þökkum SFO kærlega fyrir heimsóknina og hlökkum til nánara samstarfs.

Mynd: Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, Sigrún Elva Einarsdóttir, Halla Þorvaldsdóttir, Sólveig Sigurðardóttir, Guðlaug M. Ingvadóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson

 


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?