Guðmundur Pálsson 18. nóv. 2021

Jóla­happ­drætti Krabba­meins­félags­ins: Stuðningur við marg­þætta starf­semi

Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabba­meins­félagsins. Allt frá árinu 1955 hefur Krabba­meins­félagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. 

Fræðsla um krabbamein og krabbameins­varnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhags­stuðningi við það.

Í jólahappdrættinu fá konur senda happdrættismiða. Vinningar eru 294 talsins að verðmæti rúmum 52 milljónum króna. 

  • Aðalvinningurinn, að verðmæti 7.690.000 krónur, er HONDA CR-V Lifestyle 2.0 Hybrid CVT 4WD frá bílaumboðinu Öskju. 
  • Þrír vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. 
  • 130 vinningar eru í formi úttektar hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. 
  • Einnig eru 160 vinningar í formi úttektar hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. 

Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 24. desember.

Vinningsnúmer verða birt á krabb.is síðdegis þann 27. desember og í dagblöðum 28. desember.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8 og í vefverslun félagsins (vefverslun.krabb.is/)

Upplýsingar eru gefnar í síma 5401928. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa heimsendra miða og tilkynna þeim um vinninga. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélagsins.

Ár hvert greinast að meðaltali um 1.700 manns með krabbamein hér á landi. Lífslíkur krabba­meins­sjúklinga hafa aukist mjög mikið og er það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabbameins, greiningu á fyrri stigum og markvissri meðferð. Nú eru tæplega 16.000 einstaklingar á lífi sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.

Jol-2021


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

1. des. 2023 : Minningarorð um Jón Þorgeir Hallgrímsson

Jón Þorgeir Hallgrímsson, læknir, fyrrverandi formaður Krabbameinsfélags Íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur lést þann 21. nóvember sl., 92 ára að aldri. Jóns Þorgeirs er minnst hjá Krabbameinsfélaginu með mikilli virðingu og þakklæti. Aðstandendum vottar félagið innilega samúð. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?