Ása Sigríður Þórisdóttir 9. sep. 2020

Ís­land í farar­broddi á heims­vísu varðandi góðan árangur skimunar fyrir krabba­meini í leg­hálsi

Grein birtist á Vísi 9. september 2020

Íslandi er í hópi þeirra landa sem hafa lægsta dánartíðni í heiminum af völdum leghálskrabbameins, eða minna en 2 dauðsföll á ári á hverjar 100.000 konur.

Undanfarna daga hefur snörp umræða átt sér stað varðandi starfsemi Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins, í kjölfar mannlegra mistaka við úrlestur úr niðurstöðum frumustroks í leghálskrabbameinsleit.

Í allri heilbrigðisþjónustu verða mannleg mistök. Það sker í hjartað þegar greint er frá slíkum mistökum og við finnum til sterkrar samkenndar með þeim sem mistökin bitna á og einnig þeim sem verða fyrir því að gera mistökin.

En í kjölfarið af hinum sorglegu mistökum birtust nú í fjölmiðlum rangar staðhæfingar um skort á gæðaeftirliti í leitarstarfinu. Þær eru mjög á skjön við staðreyndir málsins, eins og sést best þegar Ísland er borið saman við önnur lönd varðandi árangur leghálskrabbameinsskimunar, sem mældur er í dánartíðni og nýgengi leghálskrabbameins þ.e. fjölda þeirra sem deyja og greinast á hverju ári.

Íslandi er í hópi þeirra landa sem hafa lægsta dánartíðni í heiminum af völdum leghálskrabbameins, eða minna en 2 dauðsföll á ári á hverjar 100.000 konur, og deilum við þeim góða árangri með hinum Norðurlöndunum og Norður Ameríku (sjá mynd). Í Evrópu er dánartíðnin tæplega 4 af 100.000, í Eyjaálfu 4,8, Asíu og Rómönsku Ameríku 6-7 og í Afríku er hún um 20 af 100.000 (GLOBOCAN   og NORDCAN 2.0 ).

Myndin sýnir dánartíðni á Norðurlöndunum borin saman við heiminn (aldursstaðlaðar tölur af 100.000).

Hjá Krabbameinsskránni hefur verið áætlað að starf Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands hafi forðað um 500 konum á Íslandi frá því að deyja af völdum leghálskrabbameins. Þetta er reiknað út frá samanburði á dánartölum áranna 1972-2018 við framreiknaðar dánartölur sömu ára, miðað við óbreytta tíðni áranna 1967-1971 og tekið tillit til breytinga í fjölda og aldri kvenna.

Nýgengi á Íslandi er nú 8,6 tilfelli á hverjar 100.000 konur, aðeins lægra en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, meðan Finnland hefur lægsta nýgengið af Norðurlöndunum ( NORDCAN 2.0 ). Þegar leitin hófst, árið 1964, var nýgengið á Íslandi þrefalt hærra en nú og var þá í örum vexti vegna fjölgunar HPV smita, en HPV veirusýkingar valda leghálskrabbameini. Árangursrík skimun leiðir til langtíma lækkunar á nýgengi leghálskrabbameins, því þar eru forstigsbreytingar greindar og fjarlægðar áður en þær geta þróast yfir í krabbamein. Bólusetning gegn HPV veirum lækkar einnig nýgengið, en slík bólusetning hófst á Íslandi árið 2011.

Árið 2018 setti Alþjóða Heilbrigðisstofnunin (WHO) sér það framtíðarmarkmið að útrýma leghálskrabbameini sem lýðheilsuvandamáli og er markmiðið að ná nýgenginu niður fyrir 4 tilfelli á hverjar 100.000 konur í öllum löndum á næstu áratugum (www.cervical-cancer-elimination-strategy-20200508b99e1a91e6ac490a9ec29e3706bdfacf.pdf ).

Þess misskilnings hefur gætt að Ísland sé ekki að standa sig, þar sem við höfum ekki náð þessu viðmiði. En í dag hefur ennþá ekkert land með virka og lýðgrundaða krabbameinsskráningu náð svo lágu nýgengi til lengri tíma þótt Finnland sé býsna nálægt því. Þetta gæti samt tekist á næstu áratugum með aukinni beitingu HPV mælinga og fyrir tilstilli bóluefna sem ná til margra HPV veirustofna.

Ástralir byrjuðu snemma að bólusetja mun víðtækari hópa, bæði varðandi aldur og kyn, en flestar aðrar þjóðir og telja þeir mögulegt að geta orðið fyrstir þjóða til að ná nýgenginu varanlega niður í 4 af 100.000, og að það gæti jafnvel gerst fyrir árið 2035.

Vitað er að nánast engar skimanir hafa 100% næmi, sem þýðir að nokkrar konur á hverju ári fá falskt neikvæð svör varðandi forstigsbreytingar og gildir þetta í öllum löndum. Næmið hefur aukist undanfarin ár á frumurannsóknarstofu Leitarstöðvarinnar eins og fram kemur í reglubundnu árlegu gæðaeftirliti. Má annars vegar rekja það til HPV mælinga sem gerðar eru á afbrigðilegum og ófullnægjandi leghálssýnum og hins vegar til þess að í byrjun árs 2019 var tekið í notkun tæki sem greinir afbrigðilegar frumur á rafrænan hátt, en það ár voru 70% leghálssýna skoðuð með tækinu.

Hinn glæsilega árangur Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins má þakka óeigingjörnu hugsjónastarfi, ekki eingöngu félagsins sem stofnsetti leitina árið 1964, heldur einnig allra þeirra sem hafa unnið starfið í áranna rás, hvort heldur eru lífeindafræðingar, læknar, hjúkrunarfræðingar eða aðrir. Þar hefur alla tíð verið unnið af einurð og fagmennsku eins og árangurinn staðfestir. Þessu fólki ber að þakka sem og öllum konunum sem hafa mætt reglulega í skimun síðustu áratugina. Til að halda áfram þeim góða árangri sem Ísland hefur náð í lækkaðri tíðni krabbameina í leghálsi er mikilvægt að konur mæti í skimun á þriggja ára fresti frá 23 ára aldri.

Höfundar:

  • Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélagsins og klínískur prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands
  • Jóhanna Eyrún Torfadóttir næringar- og lýðheilsufræðingur hjá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins og aðjúnkt við Læknadeild Háskóla Íslands
  • Helgi Birgisson yfirlæknir Krabbameinsskrár Krabbameinsfélagsins

 


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?