Ása Sigríður Þórisdóttir 17. ágú. 2020

Hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum

Krabbameinsfélagið er afar þakklátt öllum þeim sem ætla að hlaupa í Góðgerðarhlaupi Íslandsbanka og safna áheitum fyrir félagið og aðildarfélög þess.

Þó að ekki sé hægt að halda Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka í ár er samt hægt að láta gott af sér leiða með því að reima á sig hlaupaskóna og hlaupa til góðs í Góðgerðarhlaupinu.

Krabbameinsfélagið er eitt þeirra góðgerðarfélaga sem hægt er að styðja. Á undanförnum árum hafa fjölmargir hlaupið til stuðnings félaginu sem er ómetanlegt og við erum afar þakklát fyrir þann stuðning.

Rannsóknir sýna með afgerandi hætti að hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum. Einnig vegnar þeim betur eftir greiningu krabbameins sem hreyfa sig fyrir og/eða eftir greiningu.

Krabbameinsfélagið mælir því eindregið með að allir reimi á sig skóna og taki þátt í góðgerðarhlaupinu.

Ef þú hleypur fyrir Krabbameinsfélagið þá skráir þú þig hér til leiks , velur vegalengd og byrjar að safna áheitum.

  • Hlaupaátakið stendur yfir frá 15.- 25. ágúst 2020 en áheitasöfnuninni lýkur miðvikudaginn 26. ágúst 2020.

Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?