Ása Sigríður Þórisdóttir 28. feb. 2022

Forsetinn tók við fyrsta parinu á Bessastöðum í dag

Allt frá því að Mottumarssokkarnir voru fyrst kynntir til leiks, árið 2018, hefur forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson verið sá fyrsti til að klæðast þeim. Stuðningur forsetans í Mottumars er Krabbameinsfélaginu afar dýrmætur.

Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum í körlum, hefst 1. mars. Í Mottumars tökum við höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öflum fjár fyrir mikilvægri starfsemi. Minnum karlmenn sérstaklega á að kynna sér og þekkja hvaða einkenni geta bent til krabbameins og hvetjum þá til að leita fljótt til læknis verði þeir varir við einkenni.

Á myndinni eru: Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og hönnuðir sokkana Bergþóra Guðnadóttir hönnuður og Jóel Pálsson tónlistarmaður frá Farmers Market


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?