Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 7. sep. 2020

Engin gögn fundist sem styðja ummæli Tryggva

„Ég hef á þessari stundu ekki séð gögn sem gætu staðið undir þessari fullyrðingu,“ sagði María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld um þær fullyrðingar sem Tryggvi Björn Stefánsson hélt fram í Kastljósi síðastliðinn fimmtudag.

Með þessari yfirlýsingu hafa SÍ eytt þeirri óvissu sem þau ummæli ollu um hæfi Leitarstöðvarinnar til að framkvæma skimanir.

Að ósk Sjúkratrygginga Íslands sendu Krabbameinsfélagið og Leitarstöð Krabbameinsfélagsins SÍ staðfestingu á að starfsemi Leitarstöðvar uppfyllti kröfur varðandi mönnun, vinnuferla, búnað og annað.

Forstjóri Sjúkratrygginga sagði ennfremur í sjónvarpsfréttum í kvöld:

„Við höfum treyst Krabbameinsfélaginu til þess að annast þessa mikilvægu þjónustu hingað til og yfirvöld hafa óskað eftir því að Krabbameinsfélagið geri það áframt til áramóta,“ sagði María í fréttum Stöðvar 2 og í kvöldfréttum RÚV sagði hún: „Við höfum treyst Krabbameinsfélaginu fyrir þessari mikilvægu þjónustu um margra ára skeið,“ og: „Við höfum þegar falið Krabbameinsfélaginu að halda sinni þjónustu áfram til áramóta.“

Stjórn félagsins fagnar því að ummæli Tryggva Björns Stefánssonar valdi ekki lengur efa um hæfi félagsins til að framkvæma skimanir og í því ljósi heldur starfsemi Leitarstöðvarinnar áfram með óbreyttu sniði.

Krabbameinsfélagið vinnur áfram með Embætti landlæknis sem hefur hið alvarlega atvik sem upp kom á Leitarstöð til skoðunar. 


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?