Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 25. feb. 2019

Endurnýjun íbúða fyrir þá sem sækja krabbameinsmeðferð utan af landi

  • Íbúð á Rauðarárstíg

Krabbameinsfélagið rekur átta íbúðir í Reykjavík sem nú hafa fengið tímabæra endurnýjun.

Íbúð á RauðarárstígÞað getur skipt sköpum að hafa öruggan dvalarstað í Reykjavík fyrir þá sem búa á landsbyggðinni en þurfa að sækja krabbameinsmeðferð í Reykjavík. Meðferð stendur stundum yfir í nokkra daga, en oft getur hún tekið margar vikur. 

Krabbameinsfélagið rekur átta íbúðir á Rauðarárstíg fyrir fólk í þessari stöðu og aðstandendur þeirra. Það getur reynst sjúklingum og fjölskyldum þeirra afar dýrmætt að geta dvalið í göngufæri við spítalann á meðan á rannsóknum eða meðferðum stendur. Alls voru 1.990 gistinætur nýttar í íbúðunum á síðasta ári. 

Á undanförnum mánuðum hafa íbúðirnar verið málaðar, baðherbergi gerð upp og innbú og húsgögn endurnýjuð. Allt með það að markmiði að búa fólki heimilislegan og þægilegan samastað á meðan það tekst á við krefjandi verkefni. 

 Íbúð Rauðarárstíg


Fleiri nýjar fréttir

1. jún. 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?