Ása Sigríður Þórisdóttir 28. sep. 2021

Bleika slaufan 2021

Hlín Reykdal, skartgripahönnuður hannar Bleiku slaufuna í ár. Það er mér sannur heiður að hanna bleiku slaufuna í ár. Ég tileinka hana þeim sem eru að glíma við krabbamein og ástvinunum sem eru alltaf til staðar. Verum til.

Hlín Reykdal skartgripahönnuður hannar Bleiku slaufuna í ár. Hlín hefur hannað skartgripi undir eigin nafni frá árinu 2010. Hún leggur mikið upp úr fallegum litasamsetningum og vönduðu handverki í hönnun sinni. Allir hennar gripir eru framleiddir hér á landi. Hlín er einn eigandi hönnunarversluninnar Kiosk Grandagarði 35.

Það er mér sannur heiður að hanna bleiku slaufuna í ár. Ég tileinka hana þeim sem eru að glíma við krabbamein og ástvinunum sem eru alltaf til staðar. Verum til.

 

  • Bleika slaufan fer í sölu 1. október en hún fylgir með keyptum miðum á Bíókvöld Bleiku slaufunnar fyrir þá sem vilja tryggja sér slaufuna strax.

 

Bíókvöld Bleiku slaufunnar

Til að marka upphaf Bleiku slaufunnar 2021 verður boðið upp á einstakan viðburð í Háskólabíói fimmtudaginn 30. september: Sérstök sýning verður á kvikmyndinni MAMMA MIA!

Bleik stemning verður í anddyri frá kl. 19 þar sem samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar kynna bleikar vörur. Dagskrá hefst svo kl. 20 með forsýningu á auglýsingu átaksins og skemmtidagskrá þar sem meðal annars koma fram söngkonurnar Regína Ósk og Stefanía Svavarsdóttir. 

Aðgangseyrir er kr. 4.500 og innifalið er miði á sýninguna, skemmtidagskrá og Bleika slaufan 2021 sem að þessu sinni er glæsilegt hálsmen úr smiðju Hlínar Reykdal.

Ath. Myndin er án texta.

 

 


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?