Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 6. sep. 2020

„Andleg veikindi“ - ekki komið frá félaginu

Á frétt á vef Fréttablaðsins í morgun og í hádegisfréttum RÚV krefjast not­enda­sam­tökin Hugar­afl þess að stjórnendur Krabbameinsfélagsins taki ábyrgð á því að fram hafi komið í fjölmiðlum að starfsmaður hafi glímt við andleg veikindi.

Krabbameinsfélagið ítrekar að fullyrðingar um að starfsmaðurinn ætti við andleg veikindi að stríða koma ekki frá félaginu. Athugasemd var gerð við þá fullyrðingu í fréttum Stöðvar tvö fimmtudagskvöldið 3. september og fengust þau svör að upplýsingarnar kæmu frá heimildarmanni fréttamannsins.

„Við höfum aldrei sagt til um eðli veikinda umrædds starfsmanns. Það var hins vegar óumflýjanlegt að greina frá því að um mannleg mistök væri að ræða, en ekki kerfislæg eða tæknileg. Það var krafa fjölmiðla og almennings að félagið úrskýrði í hverju mistökin lægju,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Hún ítrekar hins vegar að ábyrgðin á málinu hvíli á félaginu sjálfu og stjórnendum þess, aldrei á einum starfsmanni.

 


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?