Ása Sigríður Þórisdóttir 11. maí 2022

70 andlit fyrir 70 ár - Sigrún Gunnarsdóttir

Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands var kjörin formaður Krabbameinsfélagsins á aðalfundi félagsins árið 2016, til tveggja ára.

Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands var kjörin formaður Krabbameinsfélagsins á aðalfundi félagsins árið 2016, til tveggja ára. Tími Sigrúnar í embætti formanns varð styttri en ætlað var, þar sem hún baðst lausnar í janúar 2017 þegar hún tók við starfi aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra. Þrátt fyrir stuttan tíma markaði Sigrún sín spor hjá félaginu. Sigrún var kjörin í heiðursráð félagsins árið 2019.

Sigrún Gunnarsdóttir er eitt af 70 andlitum Krabbameinsfélagsins á afmælisárinu 2021-2022. Við ætlum að birta 70 myndir eða myndskeið af fólki sem hefur komið við sögu í baráttunni gegn krabbameinum í 70 ára sögu félagsins. Krabbameinsfélagið er rekið fyrir sjálfsaflafé með stuðningi frá íslenskum almenningi og fyrirtækjum. Við hvetjum fólk til að fylgjast með á instagram og facebook, myllumerkið er #70andlit

Mynd: Anna Gyða.


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?