Ása Sigríður Þórisdóttir 29. apr. 2021

70 andlit fyrir 70 ár - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Á afmælisárinu ætlum við að birta 70 myndir eða myndskeið af fólki sem hefur komið við sögu í baráttunni gegn krabbameinum í 70 ára sögu félagsins. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er eitt af 70 andlitum Krabbameinsfélagsins.

„Tíminn læknar ekki öll sár en við getum lært að lifa með sorginni.“

Báðir foreldrar Áslaugar Örnu greindust með krabbamein þegar hún var aðeins tvítug að aldri. Tveimur árum síðar lést móðir hennar. Áslaug bendir á að mikilvægt er að sækja sér ráðgjöf og stuðning við slíkan missi. Þar eru dyrnar hjá Krabbameinsfélaginu ávallt opnar.

  https://youtu.be/FF4MvAyia-Y

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er eitt af 70 andlitum Krabbameinsfélagsins, á afmælisárinu 2021. Við ætlum að birta 70 myndir eða myndskeið af fólki sem hefur komið við sögu í baráttunni gegn krabbameinum í 70 ára sögu félagsins. Við hvetjum til að fólk fylgist með, myllumerkið er #70andlit


Fleiri nýjar fréttir

2. okt. 2023 : Takk fyrir samveruna og stuðninginn

Það er óhætt að segja að gleði, samhugur og samstaða hafi ráðið ríkjum á opnunarviðburði Bleiku slaufunnar sem haldinn var í Þjóðleikhúsinu þann 28. september. Myndirnar sem hér fylgja segja allt um stemminguna.

Lesa meira

29. sep. 2023 : Verum bleik - fyrir okkur öll

Í dag, föstudaginn 29. september, hefst árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan. Í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að mikilvægi samstöðunnar og bleika litarins sem tákns um hana.

Lesa meira

29. sep. 2023 : Slökkti fyrst eld og keypti svo Bleiku slaufuna

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að sala Bleiku slaufunnar hófst á miðnætti í dag, 29. september. Nágranni Krabbameinsfélagsins, Bergrún Ingimarsdóttir, varð fyrst til að tryggja sér slaufu ársins. Það mátti þó litlu muna að það tækist ekki vegna elds sem hún þurfti að ráða niðurlögum að.

Lesa meira

27. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023

Gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir (by lovisa) og Unnur Eir Björnsdóttir (EIR) eru hönnunarteymið á bak við Bleiku slaufuna í ár. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverk sitt, en slaufan í ár er sú bleikasta sem við höfum séð lengi

Lesa meira

26. sep. 2023 : "Mikilvægt að segja líka frá því sem gengur vel"

Styttri legutími, skjótari bati, lægri dánartíðni og betri lifun. Ný aðferðafræði við skurðaðgerðir við lungnakrabbameini var tekin upp nærri því á einni nóttu og hefur gefið reglulega góða raun í baráttunni gegn lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Viktor Ásbjörnsson læknanemi segja hér frá byltingarkenndri þróun í skurðaðgerðum við lungnakrabbameini og mikilvægi rannsókna og stuðnings við þær fyrir framþróun í málaflokkinum. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?