Björn Teitsson 24. mar. 2021

Vegleg gjöf frá Grímsey

  • IMG-2180

Kiwanis-klúbburinn Grímur frá Grímsey gerði sér lítið fyrir og sendi Krabbameinsfélaginu gjöf upp á 100 þúsund krónur. Það er einkar vel af sér vikið og fær klúbburinn hjartans þakkir frá Skógarhlíð í Reykjavík

Kiwanis-klúbburinn Grímur er stofnaður í Grímsey árið 1978. Reglulegir fundir eru haldnir í Félagsheimilinu Múla í mögulega nyrsta þéttbýli heims þar sem er að finna Kiwanis-klúbb. Á einum slíkum fundi í vikunni var ákveðið að færa Krabbameinsfélaginu veglega gjöf, sem nemur alls 100 þúsund krónum. Í Grími eru alls 23 félagar og verður þetta að teljast afar vel af sér vikið. 

IMG-2180

Krabbameinsfélagið skilar Grími hjartans þökkum fyrir þetta glæsilega framlag. 


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?