Ása Sigríður Þórisdóttir 9. okt. 2023

For­varnir og á­hættu­þættir brjósta­krabba­meina – þekktu þína á­hættu­þætti

Grein birtist í Skoðun á Visir.is 5. október 2023.

Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna á Íslandi sem og á heimsvísu. Óhætt er að segja að oft hafi verið þörf að vekja athygli á brjóstakrabbameinum og nú er það nauðsyn. Nýgengi brjóstakrabbameins, þ.e. hversu margar konur greinast af hverjum 100.000 konum, hefur aldrei verið hærra hér á landi, sem virðist því miður einnig vera hæsta nýgengi brjóstakrabbameins á Norðurlöndunum.

Það er komin hefð fyrir að október mánuður sé tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum kvenna, með Bleiku slaufunni árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins.

Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna á Íslandi sem og á heimsvísu. Óhætt er að segja að oft hafi verið þörf að vekja athygli á brjóstakrabbameinum og nú er það nauðsyn. Nýgengi brjóstakrabbameins, þ.e. hversu margar konur greinast af hverjum 100.000 konum, hefur aldrei verið hærra hér á landi, sem virðist því miður einnig vera hæsta nýgengi brjóstakrabbameins á Norðurlöndunum. Þrátt fyrir að dánartíðni af völdum þessa meins hafi vissulega farið lækkandi hér á landi undanfarin ár og áratugi, þá er hún engu að síður næsthæst hér á landi borið saman við Norðurlöndin. Að meðaltali greindust um 260 konur á ári á Íslandi með brjóstakrabbamein árin 2018-2022 og á sama tímabili létust að meðaltali 49 konur árlega af þess völdum. Brýnt er að lækka nýgengi og dánartíðni enn frekar. Þar eru öflugar forvarnir mikilvægasta vopnið.

Ein mikilvægasta forvörnin gegn brjóstakrabbameini er regluleg mæting í skimun, það eykur líkur á að hættuleg mein greinist á lægri stigum. Því fyrr sem mein greinast, því betri líkur eru á góðum árangri af meðferð. Þátttaka í skimun á Íslandi hefur verið vægast sagt dræm undanfarin ár og farið minnkandi. Sem dæmi nýttu einungis rúmlega 50% kvenna boð sitt í brjóstaskimun árið 2021, og hefur þátttaka aldrei verið lægri. Þátttaka er mun betri á hinum Norðurlöndunum og er mjög mikilvægt að greina ástæður þess og finna leiðir til úrbóta. Vert er að taka fram að þátttaka í skimun er ekki trygging gegn krabbameinum og stundum finnast ekki mein í skimun sem þó eru til staðar. Sjálfsskoðun brjósta er einnig mikilvæg forvörn. Best er að konur skoði brjóst sín reglulega sjálfar, til dæmis 7-10 dögum eftir að blæðingar hefjast í hverjum mánuði, líka þær sem mæta reglulega í skimun. Með því að þekkja sín brjóst eru konur líklegri til að verða fyrr varar við ef eitthvað er öðruvísi en það er vant að vera, sem mikilvægt er að bregðast við í kjölfarið.

Einnig er mikilvægt að þekkja áhættuþætti, þegar kemur að brjóstakrabbameini. Suma áhættuþætti er ekki hægt að hafa áhrif á, eins og ættarsögu um brjóstakrabbamein. Sama á við um áhættuþætti sem tengjast hormónum sem konur framleiða í eigin líkama, og þá einna helst estrógen og prógesterón. Konur sem byrja snemma á blæðingum og/eða fara seint í tíðahvörf eru í aukinni áhættu á að greinast með brjóstakrabbamein, meðal annars vegna þess að þær eru útsettari fyrir áhrifum þessara hormóna. Þá er vitað að konur sem eignast börn snemma á lífsleiðinni eru í minni áhættu á að fá brjóstakrabbamein en þær sem eignast börn síðar auk þess sem aukinn fjöldi fæðinga og brjóstagjöf geta verið verndandi þættir. Notkun tíðahvarfahormóna eykur einnig líkur á að fá brjóstakrabbamein, svo og notkun getnaðarvarnarpillu. Þessar meðferðir eru þó mörgum konum nauðsynlegar og því mikilvægt að konur vegi og meti hugsanlegan ávinning og áhættu í samráði við sinn lækni.

Rannsóknir hafa staðfest að ákveðnir lífsstílsþættir hafa áhrif á brjóstakrabbameinsáhættu. Ber þá einna helst að nefna líkamsþyngd, hreyfingu og neyslu áfengis. Talið er að um tíu prósent brjóstakrabbameina hjá konum eftir tíðahvörf megi rekja til of mikillar líkamsþyngdar. Ein ástæðan fyrir þessari auknu áhættu er að aukinn fituvefur framleiðir estrógen sem eykur áhættu á brjóstakrabbameini eins og áður var nefnt. Einnig eru sterkar vísbendingar um að regluleg hreyfing í um 30 til 60 mínútur í senn minnki líkur á brjóstakrabbameini hjá konum á öllum aldri. Áfengisneysla er líklega sá áhættuþáttur sem fæstir eru meðvitaðir um þegar kemur að brjóstakrabbameinum. Ekki þarf að neyta mikils áfengis til að auka áhættuna og veldur áfengi til dæmis um 5% af öllum brjóstakrabbameinum á Norðurlöndunum. Allt áfengi inniheldur etanól, sem getur haft skaðleg áhrif á bæði erfðaefni og prótein í frumum sem og stuðlað að auknu magni af estrógeni í líkamanum.

Hér á landi hefur áfengisneysla tæplega tvöfaldast á síðustu fjörutíu árum hjá fimmtán ára og eldri. Í könnun Krabbameinsfélagsins fyrr á þessu ári kom fram að rétt rúmlega 60% þátttakenda vissu að áfengisdrykkja væri áhættuþáttur krabbameina og aðeins um helmingur taldi bjór- og rauðvínsdrykkju vera áhættuþátt. Þekking fólks á áhættu af áfengi hefur þó aukist verulega miðað við niðurstöður sambærilegrar könnunar árið 2021. En betur má ef duga skal, staðreyndin er að áfengir drykkir, óháð því hvort um er að ræða bjór, léttvín (þar á meðal freyðivín) eða sterkari drykki, eru skilgreindir sem krabbameinsvaldandi af Alþjóðastofnun krabbameinsrannsókna (IARC).

Fækkun brjóstakrabbameina er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra. Núna í byrjun október hófst brjóstaskimunarátakið "Skrapp í skimun". Markmiðið með átakinu er að hvetja öll sem fá boðsbréf að mæta í brjóstaskimun. Verkefnið er samstarfsverkefni Brjóstamiðstőðvar Landspítalans, Félags kvenna í atvinnulífinu og Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins.

Við hvetjum öll til að panta sér tíma í brjóstaskimun þegar þau fá boðsbréf og skreppa í skimun, þekkja brjóst sín og bregðast fljótt við einkennum, hreyfa sig reglulega, huga að hollu mataræði, og neyta áfengis aðeins í hófi eða sleppa því. Með því er hægt að lækka nýgengi brjóstakrabbameina og auka árangur af meðferð.

Höfundar: Álfheiður Haraldsdóttir og Laufey Tryggvadóttir starfa hjá Rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins.


Fleiri nýjar fréttir

Sol-og-solarvarnir-frettabref-1-

17. maí 2024 : Fréttabréf maí mánaðar

Sólin er umræðuefni fréttabréfs maí mánaðar. Við tökum fyrir sólarvarnir og hve miklu máli þær skipta fyrir alla, þó sérstaklega börnin. Þá ræðum við húðkrabbamein sem og ráð fyrir þau sem eru með krabbamein í sumarfríinu.

Lesa meira

16. maí 2024 : Styrkir til gæða­verkefna og vísinda­rannsókna í heil­brigðis­þjónustu

Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Minningarsjóð um hjónin Bergþóru Magnúsdóttur og Jakob Júlíus Bjarnason.

Lesa meira

8. maí 2024 : Málþing: Stöðluð greiningar- og meðferðarferli, allt frá því að grunur vaknar um krabbamein

Myndi innleiðing slíkra ferla hér á landi hjálpa til við að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinum í framtíðinni? 

Lesa meira

7. maí 2024 : „Kíkjugataaðgerð“ við lungnakrabbameini styttir legutíma um helming

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands styrkti rannsóknina. Árangur blaðnámsaðgerða með aðstoð brjóstholssjár við lungnakrabbameini. Niðurstöðurnar sýna að á ekki stærra sjúkrahúsi en Landspítala er hægt er að taka upp tæknilega flókna skurðaðgerð án þess að slegið sé af kröfum um öryggi. Þannig lifðu allir sjúklingarnir aðgerðina af en færri fylgikvillar og minni verkir styttu legutíma um helming. 

Lesa meira

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?