Námskeið: Núvitund fyrir ungt fólk
Námskeið í núvitund sem byggir á Mindfulness-based Cognitive Therapy (MBCT) og er ætlað fyrir aðstandendur, á aldrinum 16-22 ára, sem hafa misst náin ástvin. Markmiðið er að öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.
Námskeiðið hefst 9. september og er fjögur skipti, vikulega á fimmtudögum kl. 16:30 - 18:00. Ekkert þátttökugjald.
Leiðbeinandi er Edda Guðmundsdóttir sálfræðingur.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
- Hér má lesa viðtal við Eddu sem birtist í Fréttablaðinu 10. október 2017 „Krabbameinsgreining hefur áhrif á alla fjölskylduna" og hlusta á hlaðvarp þar sem rætt er við Eddu og Huldu sem sótti námskeiðið og fannst það hjálpa henni mikið við að takast á við daglegt líf eftir ástvina missi.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.