Kótilettu­kvöld í tilefni Mottu­mars

  • 17.3.2022, 18:00 - 22:00, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis

Oddur Bjarni verður veislustjóri og happdrættisvinningar eru ekki af verri endanum. Til dæmis má nefna flug fyrir 2 til London frá Niceair, stóran vinning frá Bónstöð Jonna og gjafabréf frá Icelandair hotels og Geosea, ásamt mörgum öðrum vinningum.

Viðburðurinn verður haldinn á Vitanum og byrjar kl 18:30, en húsið opnar kl 18.

Aðeins 100 sæti í boði!

Miðaverð er að lágmarki 5.000 kr.

Hægt er að panta miða með því að hringja í síma 461-1470 eða senda tölvupóst á netfangið kaon@krabb.is.

Á staðnum verða kynningabásar frá félaginu og Hörður verður hjá okkur að selja mottunælur úr gamalli mynt til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.

Viðburðurinn er styrktur af Velunnarasjóði Krabbameinsfélagsins.

KRA_velunnarar_bordi_blar_vinstri_RGB


Var efnið hjálplegt?