Brjóstaþreifing - Þreifaðu brjóstin reglulega
Mælt er með að konur á öllum aldri skoði brjóstin reglulega. Þá átta þær sig á því hvað er eðlilegt og ef eitthvað breytist frá því síðast.
Þegar boðsbréf um skimun fyrir
brjóstakrabbameini fara að berast er svo mælt með að konur mæti reglulega í
skimun en haldi um leið áfram að fylgast sjálfar með brjóstum.
Þetta eykur líkur á að á að mein finnist áður en þau eru langt á veg komin.
Best er að skoða brjóstin einu sinni í mánuði, viku til tíu dögum eftir að blæðingar hefjast. Þá eru brjóstin mýkst. Eftir tíðahvörf er best að þreifa brjóstin á svipuðum tíma í hverjum mánuði, til dæmis fyrsta sunnudag í hverjum mánuði. Mikilvægt er að leita læknis ef einhver breyting finnst. Rétt er að hafa í huga að flestir hnútar í brjóstum eru góðkynja.
Kennslumyndband og leiðbeiningar um brjóstaþreifingu:brjóstaþreifingu
Þulur: Katla Margrét Þorgeirsdóttir
«Copyright Norwegian Cancer Society»