Stuðningur - ráðgjöf: Að vera aðstandandi
Fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl.16:00 – 17:30 er boðið upp á kaffi og spjall fyrir aðstandendur þeirra sem hafa greinst með krabbamein.
Hjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafi eða sálfræðingur eru á staðnum.
Tilgangurinn er að skapa vettvang fyrir spjall og stuðning. Einnig verður reglulega boðið upp á fræðslu og fleira sem getur reynst hjálplegt í þeim aðstæðum sem geta skapast þegar ástvinur er með krabbamein.
Allir aðstandendur eru velkomnir og skráning fyrirfram er óþörf.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.