Stuðnings­fulltrúa­nám­skeið Krafts og Ráð­gjafar­þjónustu Krabba­meins­félagsins

  • 16.4.2018, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í stuðningsneti Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður haldið mánudagana 16. apríl og 23.apríl, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem eru í svipuðum sporum.

Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu salfraedingur@kraftur.org eða með því að fylla út þetta skráningarform.

Frekari upplýsingar má sjá hér.


Var efnið hjálplegt?