Sólmundur Hólm segir frá reynslu sinni

  • 19.3.2018, 20:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Eftir aðalfundi Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélags Reykjavíkur að Skógarhlíð 8 í Reykjavík þann 19. mars mun Sólmundur Hólm fjölmiðlamaður og uppistandari segja frá reynslu sinni af því að greinast með krabbamein. Erindið hefst um kl. 20:30. Að venju verður boðið upp á kaffi­veitingar.

Á aðalfundunum er stefnt að sameiningu félaganna undir nafninu Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins. Félagssvæði þess verður Reykjavík, Mosfellsbær, Seltjarnarnes, Kópa­vogur, Hafnarfjörður og Garðabær. Félagið verður eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands.


Var efnið hjálplegt?