Rabbfundur hjá Góðum hálsum – kynning á Karla­klefanum

  • 8.5.2019, 17:00 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 8. maí kl. 17:00. 

Gestur fundarins verður Guðmundur Pálsson vefstjóri Krabbameinsfélagsins. Guðmundur ætlar að kynna Karlaklefann en í honum er rætt um heilsu, forvarnir, veikindi og fræðst um reynslu annarra.

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?