Rabbfundur hjá Góðum hálsum - „Hver fjarlægði lík Reynisstaðabræðra?”.

  • 2.10.2019, 17:00 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 2. október kl. 17:00. Gestur fundarins verður Ragnar Jóhannsson efnafræðingur. Hann ætlar að flytja erindið „Hver fjarlægði lík Reynisstaðabræðra - Tilgáta um glæp“.

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?