Rabbfundur hjá Góðum hálsum

  • 4.3.2020, 17:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 4. mars kl. 17:00.

Gestur fundarins er Helgi Karl Engilbertsson sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningum. Hann ætlar að ræða um krabbamein í blöðruhálskirtli.

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?