Rabbfundur: Eitlakrabbamein - stofnun stuðningshóps?
Rabbfundur fyrir fólk sem greinst hefur með eitlakrabbamein og aðstandendur þeirra verður haldinn í Ráðgjafarþjónstu Krabbameinsfélagsins fimmtudaginn 5. september kl. 16:30 – 18:00.
Signý Vala Sveinsdóttir sérfræðingur í blóðkrabbameinum flytur erindi ásamt Höllu Grétarsdóttur sérfræðingi í hjúkrun.
Kannaður verður áhugi þátttakenda á því að stofna stuðningshóp þar sem markmiðið er að hittast reglulega, bjóða upp á fræðslu og nýta sér jafningjastuðning.
Ætlað fyrir þá sem hafa greinst með eitlakrabbamein og aðstandendur þeirra.
Verið velkomin.