Rabbfundur:Brjóstakrabbamein: Aukaverkanir andhormónalyfja

  • 29.11.2016, 16:30 - 17:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Þriðjudaginn 29. nóvember kl.16:30-17:30 býður Brjóstaheill – Samhjálp kvenna og Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins upp á opinn spjallfund fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein.

Ásgerður Sverrisdóttir, krabbameinslæknir verður með erindi um aukaverkanir andhormónalyfja.

Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð.


Var efnið hjálplegt?