Námskeið: Qigong

  • 6.4.2017, 16:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Fimmtudaginn 23. mars 2017 hófst námskeið í Qigong-heilsuæfingum og hugleiðslu í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur. Námskeiðið er til að byrja með í þrjár vikur, frá kl. 16:00-17:00.

Leiðbeinandi er Þóra Halldórsdóttir.

Áhersla verður lögð á að kynna qigong æfingar og hvernig nýta má þær til að efla innri orku og almenna vellíðan.

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Þátttökugjald er 1.500 kr.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9:00-16:00, fimmtudaga kl. 9:00-18:00 og föstudaga kl. 9:00-14:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.


Var efnið hjálplegt?