Námskeið: Núvitund fyrir ungmenni 3/4
Ráðgjafarþjónustan býður upp á námskeið í núvitund sem byggist á Mindfulness-based Cognitive Therapy (MBCT) og er ætlað fyrir aðstandendur á aldrinum 16-22 ára sem hafa misst náin ástvin.
Námskeiðið byrjar fimmtudaginn 12. september 2019, kl.16:30-18:00 og er vikulega í fjögur skipti. Markmiðið er að öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.
Leiðbeinandi er Edda Margrét Guðmundsdóttir sálfræðingur.
Skráning og nánari upplýsingar radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.